Fréttir

Rabb-a-babb 245: Arney

Við röbbum við Arneyju Sindradóttur þessa vikuna, eiginkonu Þórðar Karls Gunnarssonar, móður Gunnars Atla, Ólafs Bjarna og Eldeyju Sifjar, dóttur Ernu og Sindra á Breið. Arney sleit barnsskónum fram í Lýtingsstaðarhreppi þar sem hún er næst yngst fjögurra systkina. Býr í dag á Sauðárkróki og starfar sem skrifstofustjóri á Stoð ehf. verkfræðistofu þar sem Þórður Karl teiknar og hún rukkar fyrir eins og hún kemst sjálf að orði. Spurð út í nám svarar Arney því til að það hafi fyrst verið Steinsstaðaskóli og síðar Varmahlíðarskóli sem segir allt sem segja þarf, og ei þörf á að tíunda námsferilinn neitt frekar.
Meira

Tómatsúpa og súrdeigsbrauð | Matgæðingar vikunnar

Það eru Brynja Sif Harðardóttir, Skagfirðingur, og Hannes Ingi Másson, Húnvetningur, sem voru matgæðingar í tbl. 36, 2025. Þau búa á Sauðárkróki ásamt strákunum sínum tveimur; Óliver Mána og Manúel Jóa. Þegar þessi þáttur fór í birtingu var Hannes Ingi að spila körfubolta með Tindastól og Brynja var í fæðingarorlofi. 
Meira

Húnvetningar hófu leik í Lengjubikarnum í dag

Húnvetningar eru óvenju snemma í því að hleypa knattspyrnugæðingum sínum á skeið en líkt og Tindastóll þá hóf lið Kormáks/Hvatar leik í Lengjubikarnum í dag. Leikurinn fór fram í Knatthúsi Hauka en andstæðingarnir voru KÁ (Knattspyrnufélag Ásvalla). Líkt og á Króknum voru úrslitin ekki þau sem við sóttumst eftir en lið KÁ sigraði örugglega 5-1.
Meira

„Betra fótboltaliðið tapaði í dag“

Karlalið Tindastóls spilaði í dag á teppinu á Króknum fyrsta leik vetrarins. Þetta var fyrsti leikur liðsins í Lengjubikarnum og komu andstæðingarnir norðan úr Eyjafirði – nú eða austan – frá Dalvík og Árskógsströnd. Ekki voru úrslitin eins og við hefðum viljað hafa þau þar sem gestirnir unnu 3-0 sigur en Feykir hefur það eftir áreiðanlegum heimildum að betra liðið hafi orðið að sætta sig við tap.
Meira

Hefur fengið að kynnast alvöru fótboltabullum | Sævar Birgisson heldur með Arsenal

Sævar Birgisson þekkja eflaust fáir á þessu svæði enda ekki héðan. Sævar flutti á Krókinn síðasta haust en kemur frá Grindavík og Eyjum, að hans sögn, og kennir nú við Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra. Samstarfskonan hans, Lee Ann, var svo „góð" að skora á hann að taka við þessum skemmtilega þætti, Liðið mitt, í Feyki stuttu eftir að hann byrjaði að kenna og var fátt um svör svona fyrst um sinn. En þegar hann fékk áminningu nú á dögunum var hann snöggur að skila af sér enda hefur gengið vel hjá hans mönnum undanfarið. En snúum okkur að spurningunum...
Meira

Hnetusmjörspottréttur og afrískur kjúklingaréttur | Feykir mælir með...

Einhverra hluta vegna hefur uppskriftarvefurinn gottogeinfalt.is poppað reglulega upp á Facebook-inu mínu undanfarið og að sjálfsögðu ákvað ég að kíkja aðeins á og skoða um hvað málið snýst á þessum vef. Þarna er komin síða sem er með gott safn af uppskriftum að góðum og hollum mat með áherslu á einfaldleika og hagkvæmni. Auk uppskrifta inniheldur Gott og einfalt leiðbeiningar og fræðslu um eldamennsku, næringu, minni matarsóun og fleira. Þarna er hægt að búa til vikumatseðil og vefurinn útbýr innkaupalista út frá því sem þú velur sem þú getur svo sent þér og prentað út.
Meira

Skíðasvæðið í Tindastólnum opnar á morgun

Það hefur verið snjóhallæri í vetur og varla hægt að tala um nokkurn snjó í Tindastólnum og því ekki séns að opna skíðasvæðið. En nú ber svo við að aðstæður hafa verið skíðavinum hagstæðar síðustu vikur, það hefur snjóað og það hefur verið frost. Það stefnir því í hátíð í Stólnum á morgun, laugardag, því þá verður skíðasvæðið opnað gestum,
Meira

Alltaf heillast af hættulegum forvígismönnum / ARNAR EGGERT

Að þessu sinni leitar Tón-lystin hófanna utan þjónustusvæðis og hringir ímyndaðri dyrabjöllu í Stangarholtinu hjá einum sprenglærðasta tónlistargruflara landsins. Það er að sjálfsögðu Arnar Eggert Thoroddsen sem við höfum náð að plata í að svara þættinum. Arnar Eggert er fæddur árið 1974, alinn upp í Kópavogi og Reykjavík, útmenntaður í tónlistarfræðunum frá Edinborgarháskóla og aufúsugestur á öldum ljós-vakans, ekki síst þegar eitthvert tónlistarséníið hrekkur upp af – þá er hringt í Arnar og hann rifjar upp helstu afrek viðkomandi og stöðu innan popp- og rokkkúltúrsins.
Meira

Badmus og Basile í stuði í Þorlákshöfn

Það var enginn glæsibragur yfir leik Stólanna í gærkvöldi þegar þeir lögðu lið Þórs í Þorlákshöfn í hörkuleik. En Badmus og Basile voru í stuði og þeir voru nógu öflugir til að draga Stólarútuna í mark hársbreidd á undan Lalla og lærisveinum hans í liði Þórs. Ekki það að hægt sé að ganga að því vísu að koma heim úr Höfninni með tvo stig og í viðtali eftir leik var Arnar þjálfari vel sáttur við að ná í sigur. Lokatölur voru 95-98.
Meira

Kjötbollur og steiktur fiskur að hætti verkfræðingsins | Matgæðingar Feykis

Þorgeir Sveinsson og Anna Icban sem voru matgæðingar í tbl. 32, 2025, skoruðu á Atla Gunnar og Kristvinu í Álftagerði I að taka við keflinu sem og þau að sjálfsögðu gerðu og birtist í tbl. 34. Það er ekki á allra vitorði, en Atli heldur úti matar- og lífstílsblogginu "Verkfræðingurinn í eldhúsinu", og liggur því beinast við að birta tvær uppskriftir sem hann heldur mikið upp á.
Meira