Fréttir

Andrúmsloftið á Rabarbarahátíðinni var alveg einstakt

„Rabarbarahátíðin í ár gekk alveg frábærlega. Það var blíðskaparveður á Blönduósi og mikil og góð þátttaka í öllum dagskrárliðum,“ segir Iðunn Vignisdóttir, einn af forsprökkum hátíðarinnar, þegar Feykir spurðist fyrir um hvernig hefði tekist til. Hátíðin var haldin í þriðja sinn síðastliðinn laugardag og rabarbarinn að sjálfsögðu í hávegum hafður.
Meira

Gísli Einarsson er handhafi Landstólpans 2026

Það fór framhjá Feyki á einhvern dularfullan hátt að Gísli Einarsson dagskrárgerðarmaður, uppistandari, samfélagsrýnir, blaðamaður, fararstjóri, rithöfundur, lífskúnstner og tengdasonur Skagafjarðar er handhafi Landstólpa Byggðastofnunar 2026. Viðurkenninguna hlaut Gísli á aðalfundi Byggðastofnunar sem fór fram 28. maí á Kirkjubæjarklausti. Í ár bárust samtals 27 tilnefningar til 16 aðila eða verkefna.
Meira

Þrír hlaupaviðburðir á Norðurlandi vestra á næstunni

Áhugi á utanvegahlaupum og hlaupaviðburðum hefur aukist á undanförnum árum, ekki bara á Íslandi heldur almennt úti í heimi. Norðurland vestra hefur stokkið á hlaupavagninn og þrír hlaupaviðburðir verða haldnir í landshlutanum í sumar. Molduxi Trail og Vatnsnes Trail komu ný inn í fyrra og í ár bætist við Á fram at Work – Skagastrandarhlaupið. Öll hlaupin eru til þess gerð að efla hreyfingu og útivist í einstöku náttúru Norðurlands vestra.
Meira

Ragnheiður Halldórsdóttir hefur verið ráðin í stöðu kennslustjóra í Háskólanum á Hólum

Á vefsíðu Háskólans á Hólum kemur fram að Ragnheiður Halldórsdóttir hefur verið ráðin í stöðu kennslustjóra skólans og mun hefja störf í ágúst. Ragnheiður er með BA gráðu í ensku frá Háskóla Íslands, diplómu í ferðamálafræði frá Háskólanum á Hólum, MLM gráðu í forystu og stjórnun með áherslu á verkefnastjórnun frá Háskólanum á Bifröst og hefur lokið viðbótardiplómu í menntunarfræðum frá Háskólanum á Akureyri.
Meira

Þyrla Landhelgisgæslunnar sótti slasaðan mann í Drangey

Í tilkynningu frá Landsbjörg segir að í dag var björgunarsveitin Skagfirðingasveit á Sauðárkróki kölluð út vegna einstaklings sem hafði slasast í Drangey á Skagafirði. Uppgangan í Drangey er brött og erfið og ekki hlaupið að því að flytja liggjandi sjúkling þá leið og var því brugðið á það ráð að kalla til þyrlu Landhelgisgæslunnar.
Meira

Heiður að taka við rekstri Hlíðarkaups

Það er nú sennilega á flestra vitorði, eins og á við um mörg leyndarmálin, að það eru komnir nýir eigendur að Hlíðarkaup. Þessi ástsæla verslun í Hlíðarhverfinu á Króknum hefur verið rekin af Ásgeiri Einarssyni og fjölskyldu frá upphafi en búðin var fyrst opnuð 1991. Orðsporið hefur verið framúrskarandi og var Ásgeir til að mynda kjörinn Maður ársins á Norðurlandi vestra á síðasta ári. Nýir eigendur Hlíðarkaups eru Óli Björn Pétursson, Hekla Eir Bergsdóttir, Pétur Ingi Björnsson og Regína Jóna Gunnarsdóttir.
Meira

Í tilefni af 100 ára afmæli Glaumbæjarkirkju | Sigurður Haraldsson á Grófargili skrifar

Mín fyrstu kynni af Glaumbæjarkirkju hófust þegar ég var 4 ára - eða árið 1940. Þá fór fram jarðarför Sigurðar Jónssonar í Brautarholti sem ég heiti eftir. Sigurður var oddviti Seyluhrepps í 25 ár og faðir minn var tekinn í fóstur til þeirra Brautarholtshjóna, Sigurðar og Jóhönnu Steinsdóttur frá Stóru-Gröf. Faðir minn var eins ár þegar hann var tekinn í fóstur til þeirra hjóna, en faðir föður míns, Stefán Bjarnason á Halldórsstöðum deyr frá 10 börnum sem voru á ýmsum aldri, 1902.
Meira

Mýs og menn í Fljótum

Sláttur er hafinn í Fljótum en það voru bændurnir á Brúnastöðum sem riðu á vaðið þann 27. júní. „Það þykir snemmt hér í Fljótum,“ segir í færslu bóndans á Molastöðum á Sveitin okkar – Fljótin á Facebook.
Meira

Aðsóknarmet á HipFest 2026

Um nýliðna helgi fór brúðulistahátíðin HIP Fest 2026 fram á Hvammstanga en það er Handbendi brúðuleikhús sem hefur veg og vanda að hátíðinni sem er magnað menningarframtak á landsbyggðinni. Þetta var í fimmta sinn sem hátíðin er haldin og óhætt að fullyrða að hún verði glæsilegri með hverju skiptinu. Samkvæmt heimildum Feykis var slegið aðsóknarmet á hátíðinni sem vonandi heldur áfram að vaxa og dafna.
Meira

Lokað fyrir aðgengi að Fosslaug og Reykjafossi af margþættum ástæðum

Lokað hefur verið fyrir aðgengi að Fosslaug og Reykjafossi. Dagur Torfason, landeigandi að Fosslaug og Reykjafossi, gaf frá sér yfirlýsingu á Facebook þar sem hann sagði frá ákvörðuninni. Bæði laugin og fossinn hafa verið vinsælir ferðamannastaðir en landið er nærri Varmahlíð.
Meira