Ásdís Ósk og Eyrún Ýr tilnefndar til knapaverðlauna
feykir.is
Skagafjörður, Hestar
28.10.2016
kl. 13.38
Skagfirðingarnir Ásdís Ósk og Eyrún Ýr hafa báðar fengið tilnefningu til knapaverðlauna á Uppskeruhátíð hestamanna sem fram fer í byrjun nóvember.
Skagfirðingarnir Ásdís Ósk Elvarsdóttir á Syðra-Skörðugili og Eyrún Ýr Pálsdóttir á Flugumýri hafa verið tilnefndar fyrir knapaverðlauna sem afhent verða á Uppskeruhátíð hestamanna í Gullhömrum í Reykjavík þann 5. nóvember næstkomandi.
Ásdís Ósk er tilnefnd í flokki efnilegustu knapa ársins en Eyrún Ýr í flokki gæðingaknapa ársins. Allar tilnefningar hafa verið birtar á vef Eiðfaxa og verða þeir sem útnefndir eru í hverjum flokki heiðraðir á Uppskeruhátíð hestamanna, auk þess sem ræktunarbúi ársins verða veitt verðlaun. Á vefnum segir að hátíðin verði glæsileg að vanda en það eru LH og FHB sem standa saman að henni.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.