Fagur fiskur úr sjó

Á dögunum kom sjaldséður fiskur úr sjó á Sauðárkróki, sem við nánari skoðun virtist vera sandhverfa. Það var Stefán Valdimarsson á Vin SK-22 sem fann fiskinn í netum sínum er hann var að draga síðustu grásleppunetin úr sjó í lok síðustu viku.

Sandhverfan (fræðiheiti:Scophthalmus maximus) reyndist vel væn, en hún mældist 54 sentímetrar á lengd, 52 sentímetrar á breidd og þykktin var sex sentímetrar. Vó hún 3,5 kíló á löggiltri vog. Á heimasíðu Skagafjarðarhafna segir að sandhverfa þyki herramannsmatur og fari kílóið á 3-5000 krónur á mörkuðum.

Fleiri fréttir