Higgins endurráðin fyrir næsta tímabil

Stjórn körfuknattleiksdeildar Tindastóls hefur endurráðið Tashawna Higgins, þjálfara og leikmann mfl. kvenna, fyrir næsta tímabil. Tashawna er mikill happafengur fyrir félagið og fær nú tækifæri á að halda áfram að móta unga leikmenn Stólanna á næsta tímabili.

Stjórn körfuknattleiksdeildar Tindastóls sagði hana vera sinn fyrsta kost sem þjálfara eftir frábært gengi kvennaliða Tindastóls í vetur. Að vera bæði þjálfari og leikmaður í meistaraflokki getur verið strembið og hefur nú stjórnin einnig ráðið Kára Marísson sem aðstoðarþjálfara hjá mfl.kvenna á komandi tímabili. Stjórnin telur ráðningu Kára sem aðstoðarþjálfara eiga eftir að hjálpa mikið til í því að gera góða leikmenn Stólanna enn betri og muni hjálpa mikið til á æfingum og í leikjum. Er óhætt að segja að það séu bjartir tímar framundan í Skagafirðinum. Áfram Tindastóll!

/Fréttatilkynning

Fleiri fréttir