Jón Stefán Jónsson nýráðinn þjálfari Tindastóls

Jón Stefán Jónsson hefur verið ráðinn þjálfari m.fl. karla hjá Tindastóli. Frá þessu var gengið um helgina segir í tilkynningu frá knattspyrnudeild Tindastóls. Jón Stefán eða Jónsi eins og hann er kallaður er fæddur árið 1982 og sem leikmaður má segja að hann hafi verið alinn upp á Akureyri hjá Þór en einnig lék hann með KA og Tindastóli sem polli.

Sem leikmaður lék hann lengst af með Þór í meistaraflokki en eftir tímabilið 2006 ákvað hann að einbeita sér fremur að þjálfun en spilamennsku. Hann lék þó nokkra leiki í neðri deildum með hinum ýmsu liðum áður en skórnir fóru endanlega á hilluna árið 2011.

Jónsi, sem er með UEFA A þjálfaragráðu frá árinu 2011, hefur starfað sem þjálfari frá árinu 2004 og þá lengst af í yngri flokkum Þórs. Árið 2011 fór hann suður og gerðist þjálfari hjá Haukum sem aðalþjálfari m.fl. kvenna sl. tvö ár.

Knattspyrnudeild væntir mikils að samstarfinu við hann enda fara hugmyndir og framtíðarsýn beggja vel saman.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir