Málþing um konur í Sturlungu í Skagafirði 19. júní
feykir.is
Skagafjörður, Listir og menning
15.06.2014
kl. 11.41
Félagið á Sturlungaslóð, Héraðsbókasafn Skagfirðinga, Kakalaskáli og Stofnun Árna Magnússonar standa fyrir málþingi í Kakalaskála þann 19. júní kl 17-19. Málþingsstjóri er Guðrún Ingólfsdóttir fræðimaður og er aðgangur ókeypis.
Fyrirlesarar:
- Guðrún Nordal, forstöðumaður Árnastofnunar – Kvenkyns líf
- Gunnar Karlsson, prófessor við HÍ – Elskaðar konur – Ástfangnar konur
- Sigríður Sigurðardóttir, forstöðumaður Byggðasafns Skagfirðinga – Hefði Jórunn sagt já
„Þetta er í annað sinn sem þessar stofnanir og félög taka sig saman og standa fyrir málþingi í Kakalaskála og var þingið í fyrra vel sótt. Allir eru velkomnir í Kakalaskála á kvenréttindadaginn 19. júní til heiðurs formæðrum okkar,“ segir í fréttatilkynningu.
Boðið verður upp á léttar veitingar og nokkrar karlaraddir úr Skagfirska kammerkórnum flytja nokkur lög.