Nemendur Varmahlíðarskóla í úrslit Nýsköpunarkeppni grunnskólanemenda
feykir.is
Skagafjörður
12.05.2014
kl. 09.38
Þrír nemendur í 7. bekk Varmahlíðarskóla komust áfram í úrslit Nýsköpunarkeppni grunnskólanemenda 2014. Á heimasíðu skólans kemur fram að um 1800 umsóknir bárust frá nemendum í 5., 6., og 7. bekk í 43 grunnskólum um allt land og voru valdir 45 þátttakendur út frá viðmiðum um raunsæi, hagnýti og nýnæmi.
Það voru þeir Andri Snær Tryggvason, Ari Óskar Víkingsson og Þórir Jóelsson sem sendu hugmyndir sínar inn í keppnina og komust áfram í úrslit. Þeir fá að taka þátt í vinnusmiðju dagana 22. og 23. maí nk. í Háskólanum í Reykjavík. Birgitta Sveinsdóttir kennari hélt utan um vinnu nemenda í hugmynda- og umsóknarferlinu.