Norðan við hrun-sunnan við siðbót

Á fimmtudag og föstudag í síðustu viku var haldin í Háskólanum á Hólum ráðstefnan „Norðan við hrun, sunnan við siðbót,“ sem er áttunda ráðstefnan um íslenska þjóðfélagið. Um er að ræða árlega ráðstefnu sem fjórir háskólar og háskólasetur á landsbyggðinni skiptast á að halda.

Dagskrá og skipulag ráðstefnunnar var í höndum starfsfólks Ferðamáladeildar Háskólans á Hólum; Georgette Leah Burns, Guðrúnar Þóru Gunnarsdóttur og Guðrúnar Helgadóttur og nutu þær góðrar aðstoðar Önnu Margrétar Jakobsdóttur, sem er verknemi í viðburðastjórnun við Háskólann á Hólum. Umsjón með veitingum og gistingu var í höndum Þórhildar Maríu Jónsdóttur og starfsfólks Ferðaþjónustunnar á Hólum.

Blaðamenn Feykis brugðu sér heim að Hólum og fylgdust með málstofu um fjölmiðla og hittu skipuleggjendur ráðstefnunnar. Nánar er fjallað um ráðstefnuna í 19. tölublaði Feykis sem út kom í dag.

Fleiri fréttir