Opinn dagur í Gestastofu sútarans og Sjávarleðri á föstudag
Gestastofa sútarans og Sjávarleður ætlar að vera með opinn dag nk. föstudag í tilefni af vorkomu og þess að nýtt ferðasumar er framundan. „Okkur langar til að fá sem flesta Skagfirðinga og nærsveitungar til að koma í heimsókn til okkar og kynna fyrir ykkur það sem í boði er hjá okkur,“ segir Sigríður Káradóttir framkvæmdastjóri Gestastofu sútarans.
Boðið verður uppá ferðir í gegnum verksmiðjuna með leiðsögn á heila og hálfa tímanum og hægt verður að sjá hvernig skinn verður að hágæða leðri. Einnig verður hægt að skoða saumastofuna sem er fullbúin vinnustofa en þar eru haldin saumanámskeið. Mikið vöruúrval er í búðinni og nýju sumarlitirnir komnir.
Allir eru boðnir velkomnir á milli kl. 13 og 19 nk. föstudag, léttar veitingar og blöðrur fyrir börnin.