Opnir kynningarfundir um Þjóðgarð á miðhálendinu

Mynd af netinu.
Mynd af netinu.

Þverpólitísk nefnd sem vinnur að tillögum um stofnun þjóðgarðs á miðhálendinu boðar til opinna funda um vinnu nefndarinnar. Á heimasíðu Sveitarfélagsins Skagafjarðar kemur fram að á fundunum veri farið yfir verkefni nefndarinnar fram til þessa, ásamt því að ræða lokaskrefin í vinnu hennar.

Nefndin mun skila lokaskýrslu með tillögum sínum til umhverfis- og auðlindaráðherra í september næstkomandi. Fundirnir eru öllum opnir og fer fyrsti fundur fram í Logalandi 12. ágúst næstkomandi og sá síðari í Stórutjarnarskóla 26. ágúst næstkomandi.  

Fundirnir hefjast kl. 20:00 og áætlað er að þeim ljúki 21:30.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir