Ósigur á KR-vellinum í gærkveldi

Meistaraflokkur kvenna hjá Tindastóli mætti KR í úrslitaleik á KR-vellinum í gærkveldi. Mikil óánægja hafði verið með valið á vellinum en Stólastúlkur létu það ekki á sig fá og mættu ákveðnar til leiks.

KR stúlkur náði strax forskoti í leiknum, en á 5. mínútu skoraði Sigríður María S.Sigurðardóttir fyrsta mark KR-inga. Á 33. mínútu kom hún svo boltanum aftur í mark Stólanna og staðan því í hálfleik 2-0 fyrir KR.

Seinni hálfleikur fór rólega af stað en á 79. mínútu skoraði Birna Rún Erlendsdóttir þriðja mark KR-inga. Lokatölur leiksins 3-0 fyrir KR.

Fleiri fréttir