Sæluviku-laugardagur
Í dagfrá kl 10-12 verður morgunkaffi með kaffiklúbbnum Skín við sólu Skagafjörður í Ljósheimum. Þá halda áfram myndlistarsýningar sem verið hafa opnar í Sæluviku, auk þess sem við bætist sýningin „Svipmyndir mannlífsins“ í Maddömukoti en þar verður opið hús frá kl 1417 og heitt á könnunni.
Í Miðgarði verður Sæluvikuveisla á Hótel Varmahlíð þar sem gestir geta keypt sér dýrindis máltíð áður en haldið er á Sæluvikutónleika Karlakórsins Heimis. Einnig er boðið upp á þriggja rétta máltíð á Ólafshúsi.
Leikfélag Sauðárkróks sýnir Rjúkandi ráð kl 17:00.Sæluvikutónleikarnir hefjast kl 20:30 í Miðgarði en kl 22:00 hefst trúbbakvöld á Kaffi Krók og frá miðnætti mun hljómsveitin Papar trylla lýðinn á Mælifelli.
Dagskrá Sæluviku er að finna hér.