Saknar einhver kisa?
feykir.is
Skagafjörður
30.05.2014
kl. 09.06
Svartur og hvítur köttur fannst á Sauðárkróki, nánar tiltekið út á Eyri á miðvikudag. Kisinn er ómerktur og er ekki með örflögu. Ef einhver saknar hans er viðkomandi beðinn að hafa samband við Gunnar Pétursson, yfirverkstjóra þjónustumiðstöðvar í síma 8947466.
/Fréttatilkynning
