Skíðavertíðinni lokið í Tindastól
feykir.is
Skagafjörður, Íþróttir
13.05.2014
kl. 10.15
Nú er búið að loka skíðasvæðinu en alls komu 4109 manns á skíði í Tindastól á 100 dögum samkvæmt vef Tindastóls.
Skíðadeild Tindastóls og starfsmenn vilja þakka öllum kærlega fyrir komuna í vetur. ,,Vonandi sjáumst við kát og hress í haust", segir á vefnum.
