Stjórn endurkjörin á aðalfundi körfuknattleiksdeildar
Stjórn körfuknattleiksdeildar Tindastóls var endurkjörin á aðalfundi félagsins í gærkvöldi en hana skipa Stefán Jónsson formaður, Una Sigurðardóttir gjaldkeri, Björn Hansen, Hafdís Einarsdóttir og Ólafur Björn Stefánsson.
Samkvæmt fréttatilkynningu var aðalfundur körfuknattleiksdeildar haldin á skrifstofu félagsins á Sauðárkróki í gær, á dagskrá voru hefðbundin aðalfundarstörf.
„Fundarstjóri var kosinn Eiríkur Loftsson og leiddi hann fundinn af mikilli fagmennsku. Fóru formenn stjórnar og unglingaráðs með skýrslur sinnar deildar og gjaldkerar deildanna fóru yfir reikninga félagsins, voru þeir samþykktir af fundargestum. Lítils háttar hagnaður varð bæði af stjórn deildarinnar og unglingaráði. Kom fram ein tillaga af stjórn á fundinum og var hún samþykkt einróma á fundinum,“ segir í fréttatilkynningu.