Strákar geta líka fengið átraskanir
Daníel Logi Þorsteinsson er sextán ára piltur frá Sauðárkróki sem hefur glímt við átröskunarsjúkdóminn lotugræðgi eða búlimíu í um tveggja ára skeið. Fram til þessa hefur Daníel gert það í hljóði en nú hefur hann ákveðið að stíga fram og vekja máls á þessum hættulega sjúkdómi, sem hingað til hefur nær eingöngu verið tengdur við stúlkur.
Daníel Logi vill opna umræðuna um átraskanir því líkt og aðrir sjúkdómar er hann ekki kynbundinn og getur herjað á stráka jafnt sem stelpur.
Í viðtalinu bendir Daníel réttilega á að það hafi ekki bætt úr skák í bataferlinu, þegar hann var látinn þreyta próf á göngudeild Barna- og unglingadeildarinnar, hvernig spurningarnar voru.
„Ég ber mig saman við aðrar stelpur“ eða „ég lít á mig sem feita“. „Það var eins og öll prófin sem ég var látinn taka væru bara fyrir stelpur. Af því ég er ekki stelpa eða samkynhneigður þá var það náttúrulega svolítið erfitt fyrir mig að sættast á það ég væri með þennan sjúkdóm.“ Mér finnst að það ætti að gera þessi próf kynhlutlausari, frekar ættu spurningarnar að vera „ég sem einstaklingur ber mig saman við aðra á mínum aldri.“
Þetta er hluti af því sem Daníel hafði um málið að segja en hann deildi sjúkdómssögu sinni með blaðamanni Feykis og má lesa hana í nýjasta tölublaði Feykis.