Pistill um tónlistarskólann | Gunnar Ingi Jósepsson skrifar
feykir.is
Austur-Húnavatnssýsla, Aðsendar greinar
15.05.2026
kl. 16.31
Tónlistarskóli Austur-Húnavetninga stendur nú frammi fyrir verulegum húsnæðis- og aðstöðuvanda sem hefur bein áhrif á gæði og skilvirkni tónlistarnáms í sveitarfélaginu. Til þess að tónlistarkennsla geti farið fram með eðlilegum hætti þarf tónlistarskóli að vera í návígi við grunnskólann. Nemendur þurfa að geta gengið auðveldlega úr kennslustundum í grunnskólanum yfir í tónlistartíma og aftur til baka án þess að það raski skólagöngu þeirra eða skapi óþarfa álag.
Meira
