Tugir námsmanna útskrifast frá Farskólanum

Það var ánægjuleg stund hjá Farskólanum í gær, miðvikudaginn 14. maí, þegar tugir námsmanna útskrifuðust úr þremur Skrifstofuskólum og af tveimur námskeiðum sem kallast Nám og þjálfun í almennum bóklegum greinum.

Þessar tvær námsleiðir hafa lengi verið vinsælar hjá Farskólanum. Skrifstofuskólinn er 240 kennslustunda nám sem má meta til allt að 18 framhaldsskólaeininga og Nám og þjálfun er 300 kennslustunda nám sem má meta til allt að 24 framhaldsskólaeininga, svo fremi sem námsmenn standast kröfur námsins.

Þessi námskeið verða áfram í boði hjá Farskólanum. Nánari námslýsingar má finna á heimasíðu Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins.

Á heimasíðu sinni þakkar Farskólinn leiðbeinendum og verkefnastjórum þessara námskeiða fyrir gott samstarf í vetur. Farskólinn þakkar einnig Fjölbrautaskólanum fyrir gott samstarf en FNV mat námskeiðin til eininga inn í sinn skóla.

Meðfylgjandi myndir eru af heimasíðu Farskólans.

.

Fleiri fréttir