Við erum fyrst og síðast að hugsa um öryggi ferðamanna
Undanfarna daga hefur verið mikið um framkvæmdir í Drangey en eins og Feykir greindi frá í seinustu viku er verið að endurbæta flotbryggjuna þar og festingar, sem eyðilögðust í veðurofsum í fyrra. Feykir hafði samband við Viggó Jónsson hjá Drangeyjarferðum og spurði hann út í þær framkvæmdir sem hafa átt sér stað í eyjunni.
„Við erum bara að undirbúa sumarið og höfum verið að setja niður festingar fyrir flotbryggjuna sem við erum með í Drangey og fengum til þess varðskipið Þór núna á dögunum og þeir komu steinunum fyrir, fyrir okkur í sjónum. Síðan fórum við með kafara þarna út til að tengja keðjur úr flotbryggjunni við steinana, koma þessu öllu fyrir þannig að þetta fari vel. Síðan erum við búnir að vera að gera uppgönguna klára, þ.e.a.s leiðina upp á eyju, þetta eru svona þessi hefðbundnu vorverk nema aðeins í stærri kantinum.“
„Flotbryggjan brotnaði í fyrra, þær gáfu sig festingarnar fyrir akkerin. Við erum að styrkja það allt saman núna, setja öflugri keðjur og festingar niður í víkinni.“
Viggó vonast til þess að þessar framkvæmdir verði til þess að flotbryggjan verði á sínum stað áfram, en það hefur áður gerst að flotbryggjan eyðileggist.
„Já við svona, við vonum það en enginn veit fyrr en allt í einu eins og maðurinn sagði,“ segir Viggó og hlær.
Varðskipið Þór var fengið til þess að hjálpa til við að ferja steinana, steypta klumpa, í eyjuna og setja þá niður á botn.
„Já þetta náttúrulega hlutverk gæslunnar var nú bara það, að þeir voru hérna á ferðinni í vitatúr og þeir komu í rauninni bara til að hjálpa okkur að taka steinanna, við létum steypa svona klumpa inn á krók og þeir tóku þá bara fyrir okkur og fluttu þá fram í Drangey og komu þeim á staðinn þar sem þeir eiga að vera. Þetta eru hundvanir menn og voru snöggir að, við fengum þá bara í rauninni því þeir voru á ferðinni.“
„En þetta hefur bara gengið svosem vel og við erum bara að feta okkur þarna áfram í rólegheitunum, við byrjuðum þyrlur þarna í haust við að steypa þarna part sem er að brotna niður sem við þurftum að laga til að mannvirkin fari ekki. Það er verið að vinna áfram í því núna en nú er náttúrulega fuglalífið komið á fullt þannig að við getum ekki notað við svoleiðis stórvirkar vélar eins og þyrlur, þannig við erum bara að sigla þessu á bátnum hjá okkur, tökum steypuna bara inn á krók og siglum með hana fram,“ segir Viggó.
Viggó reiknar með því að framkvæmdum ljúki vonandi seinnipartinn í sumar og að þá verði aðstaðan eins og best verður á kosið.
„við erum bara fyrst og síðast að hugsa bara um öryggi ferðamanna, að það sé gott að komast þarna að, gott að komast í land og komast upp. Það er nú það sem við erum fyrst og síðast að hugsa um. Þannig að þetta sé okkur Skagfirðingum til sóma,“ segir Viggó að lokum.
Myndir: Drangeyjarferðir
/SMH