Skemmtibát hvolfdi á Skagaheiði
feykir.is
Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla
13.06.2020
kl. 08.13
Björgunarsveitir á Norðurlandi voru kallaðar út um miðjan dag í gær eftir að skemmtibát hvolfdi á Langavatni á Skagaheiði. Í frétt á mbl.is segir að þrír hafi verið um borð í bátnum og hafi allir komist á kjöl. Björgunarsveitarmen voru komnir að vatninu um klukkan fjögur og komu fólkinu á þurrt þar sem sjúkraflutningamenn tóku við og hlúðu að því. Enginn slasaðist en fólkið var kalt og hrakið.
Meira
