Feykir – fréttablað á Norðurlandi vestra kemur út vikulega með fréttir af svæðinu.
-
Grunnskólinn austan Vatna komst bara víst í úrslit í Skólahreysti
Eitthvað klikkuðu reikningskúnstir Feykis í nótt þegar birtar voru niðurstöður í Skólahreysti. Þá var nánast fullyrt að Grunnskólinn austan Vatna í Skagafirði hefði naumlega orðið af sæti í úrslitum keppninnar skemmtilegu – en viti menn; í hádeginu í dag var tilkynnt á Facebook-síðu Skólahreysti að Grunnskólinn austan Vatna hefði sannarlega tryggt sér sæti í úrslitunum. Norðurland vestra er því með þrjá skóla af tólf í úrslitum Skólahreysti og ef það var snilld að eiga tvo skóla af tólf miðað við höfðatölu í nótt hversu geggjað er þá að eiga þrjá skóla í úrslitunum!?
-
Hermann Sæmundsson ráðuneytisstjóri fylgir Sigurði Inga sem skugginn
Fjármála- og efnahagsráðherra, innviðaráðherra og Skagfirðingurinn Hermann Sæmundsson hafa gert með sér samkomulag um flutning Hermanns í embætti ráðuneytisstjóra fjármála- og efnahagsráðuneytisins og mun hann taka við frá og með 1. maí 2024. Hemmi Sæm, sem er sonur heiðurshjónanna Sæmundar Hermannssonar frá Ysta-Mói í Fljótum og Ásu Helgadóttur, sem bæði eru látin, er alinn upp á Skagfirðingabrautinni á Króknum. -
Grillaður fiskur og tiramisu
Matgæðingar vikunnar í tbl 24 í fyrra voru Ágúst Andrésson, þá forstöðumaður Kjötafurðastöðvar KS, og Guðlaug Kristín Pálsdóttir, sérfræðingur á Brunavarnasviði HMS. Ágúst og Guðlaug búa saman á Sauðárkróki og er Gústi borinn og barnfæddur í Skagafirði, nánar tiltekið á Bergstöðum, en Gulla ólst upp í Reykjavík og fluttist á Sauðárkrók í miðju Covid árið 2020. Þau erum eigendur að Norðar ehf. sem m.a. flytur inn vín frá Moldóvu og Ítalíu og hafa einnig staðið í eigin veitingarekstri og hafa mjög gaman af því að ferðast og borða góðan mat. -
Litla hryllingsbúðin enn lokuð vegna veikinda!
Í gær tók Leikfélag Sauðárkróks stöðuna varðandi sýningarhald á Litlu hryllingsbúðinni en eins og áður var greint frá í Feyki varð að fresta frumsýningu sl. sunnudag vegna veikinda í leikhópnum. Því miður reyndist staðan þannig að fyrirhugðum sýningum á miðvikudag og föstudag hefur nú verið frestað um óákveðin tíma. -
Úrslit í Vísnakeppni Safnahúss Skagfirðinga
Við setningu Sæluviku Skagfirðinga þann 28. apríl sl. voru að venju birt úrslit í vísnasamkeppninni, okkar árlega viðburði, vonandi verður keppnin haldin um ókomin ár. Markmiðið er að fá fólk til að botna fyrirfram gefna fyrriparta og einnig að yrkja vísu eða vísur um líflegt og litríkt forsetaframboð, hafa aldrei fyrr verið jafn margir til kallaðir á þeim vettvangi mun það verðugt rannsóknarefni. Þátttaka í keppninni var nokkuð góð, alls bárust okkur svör frá tíu hagyrðingum.
Ljósmyndavefur Feykis
Ertu með snjalla hugmynd
varðandi myndefni?
feykir@feykir.is
-
Sterk hreyfing – sterkt samfélag
Verkalýðsdagurinn verður haldinn hátíðlegur í Húnabyggð 1. maí undir yfirskriftinni Sterk hreyfing – sterkt samfélag. Kaffiveitingar verða að venju í Félagsheimilinu á Blönduósi og hefst dagskráin klukkan 15. Ræðumaður dagsins er Sigurey A. Ólafsdóttir, formaður Stéttarfélagsins Samstöðu. -
Varmahlíðarskóli tryggði sér sæti í úrslitum Skólahreysti
Fjórir skólar af Norðurlandi vestra tóku í gær þátt í sjöunda riðli Skólahreysti en keppnin fór fram í Höllinni á Akureyri. Það var lið Varmahlíðarskóla sem sigraði og tryggði sér þannig sæti í úrslitunum sem fram fara í Laugardalshöll síðar í maí. Þá varð Grunnskólinn austan Vatna í öðru sæti riðilsins. Áður hafði Grunnskóli Húnaþings vestra tryggt sig inn í úrslitin og það verða því tveir skólar af Norðurlandi vestra á meðal þeirra tólf skóla sem keppa til úrslita. -
Hlaupið fyrir Einstök börn á morgun
Hlaupahópurinn 550 Rammvilltar blæs á ný til styrktarhlaups fyrir félagið Einstök börn þann 1. maí á Sauðárkróki en hlaupið hefst kl. 14:00. Veðurstofan spáir björtu veðri með dassi af norðanátt en er frekar sparsöm á hitastigin. Það stefnir því allt í upplagt hlaupaveður og engin afsökun að hanga heima. -
Skemmdir á um 1500 fermetrum vallarins
Feykir.is birti í síðustu viku viðtal við Adam Smára Hermannsson, formann knattspyrnudeildar Tindastóls, sem sagði frá talsverðu tjóni sem varð á gervigrasvellinum glæsilega á Sauðárkróki í leysingum þann 20. apríl en þá fór völlurinn undir vatn. Í gær birtist frétt á vef Skagafjarðar þar sem greint var frá því að eftir athugun í liðinni viku liggi fyrir að skemmdir urðu á vellinum á um 1.500 fermetrum, þar af eru um 1.000 fermetrar illa farnir. -
Loftslagsráðherrann og sveitarfélögin á Norðurlandi vestra | Sigurjón Þórðarson skrifar
Núverandi umhverfisráðherra fer með himinskautum í endurskipulagi stofnana ráðuneytisins, þar sem rauði þráðurinn er að sjónarmið Samtaka atvinnulífsins ráði ferðinni í einu og öllu. -
Samvinnurými á Skagaströnd hlaut 15 milljón króna styrk
SSNV og sveitarfélagið Skagaströnd hafa undirritað samning vegna 15 milljón króna styrks til að skapa samvinnurými á Skagaströnd. Í frétt á vef SSNV segir að markmiðið með verkefninu sé að skapa samvinnurými á Skagaströnd með því að standsetja og markaðssetja húsnæði í eigu sveitarfélagsins, skapa forsendur fyrir léttan iðnað í hluta hússins og aðstöðu fyrir frumkvöðla og minni fyrirtæki í öðrum hluta þess.
Mest skoðað
Pistlar
-
Úrslit í Vísnakeppni Safnahúss Skagfirðinga
Við setningu Sæluviku Skagfirðinga þann 28. apríl sl. voru að venju birt úrslit í vísnasamkeppninni, okkar árlega viðburði, vonandi verður keppnin haldin um ókomin ár. Markmiðið er að fá fólk til að botna fyrirfram gefna fyrriparta og einnig að yrkja vísu eða vísur um líflegt og litríkt forsetaframboð, hafa aldrei fyrr verið jafn margir til kallaðir á þeim vettvangi mun það verðugt rannsóknarefni. Þátttaka í keppninni var nokkuð góð, alls bárust okkur svör frá tíu hagyrðingum.Meira -
Loftslagsráðherrann og sveitarfélögin á Norðurlandi vestra | Sigurjón Þórðarson skrifar
Núverandi umhverfisráðherra fer með himinskautum í endurskipulagi stofnana ráðuneytisins, þar sem rauði þráðurinn er að sjónarmið Samtaka atvinnulífsins ráði ferðinni í einu og öllu.Meira -
Heiminn vantar fleiri faðmlög | Leiðari 14. tbl 2024
Faðmlag er eitt af mörgum fallegum orðum í íslenskunni. „Faðmlög eru einstaklega jákvæð leið til samskipta og til að sýna væntumþykju. Vinir faðmast og við sýnum fólkinu okkar væntumþykju með faðmlögum,“ segir á netsíðunni Hjartalíf.is og þar er reyndar sagt að faðmlög minnki hættuna á hjarta- og æðasjúkdómum og losi um streytu. Það eru því fá – ef einhver – lög betri en faðmlögin og þau ættu að ósekju að tróna á toppi vinsældalista okkar íbúa bláa hnattarins.Meira
SiggaSiggaSigga
-
Miðvikudagur 25. október 2023
Leiðari: Hvar er krummi?
Leiðari vikunnar er meira svona hugleiðing um hvað varð af krummanum hér á Króknum því á tal við Feykisfólkið kom ágætur áskrifandi sem hafði áhyggjur, já eða skildi ekki hvað hefði orðið af krumma. Þannig vill til að þar sem maðurinn heldur til við sín störf hafa yfirleitt verið nokkuð mörg krummapör í gegnum árin og hann fylgst með þeim og taldi, þegar mest var, um 17 pör.
Feykir á facebook
Uppskriftir frá lesendum
-
Grillaður fiskur og tiramisu
Meira -
Ostapasta og hvítlauksbrauð
Meira -
Rjómapasta og púðursykursterta
Meira
Sendu okkur uppskriftir
á feykir@feykir.is
Það var lagið
Að þessu sinni mælir Feykir.is með
-
Dásamleg upplifun sælkera á Bjórhátíðinni á Hólum
Bjórhátíðin á Hólum verður haldin nk. laugardag 1. júlí og er það í ellefta sinn sem hún er haldin. Hátíðin stendur frá kl 15:00 – 19:00 en á svæðið mæta helstu bjórframleiðendur landsins og kynna fjölbreytt úrval af gæðabjóra.
Hvað er að gerast
Sendu upplýsingar um viðburði á feykir@feykir.is
Rabb-a-babb
-
Rabb-a-babb 83: Elfa Hrönn
Nafn: Elfa Hrönn Friðriksdóttir.
Árgangur: 1978.
Fjölskylduhagir: Gift Árna Birgissyni og á með honum 2 syni, Birgi Þór grunnskólanema og Kolbein Tuma leikskólanema. Fyrir átti árni soninn Hring sem er menntaskólanemi.
Búseta: Bús...
Tón-Lystin
-
Langar að gefa 11 ára sjálfum sér fimmu / HAUKUR SINDRI
Haukur Sindri Karlsson er ungur og upprennandi tónlistarmaður sem vakið hefur verðskuldaða athygli m.a. fyrir aðkomu sína að tónlistarvinnu í uppsetningum leikverka við Verkmenntaskólann á Akureyri. Hann hefur verið að gefa út eigin tónlist sem hægt er að finna á Spotify, undir Haukur Karls, og fyrir skömmu gaf hann út, í samvinnu við félaga sína á Króknum Atla Dag Stefánsson og Ásgeir Braga Ægisson, nýtt lag, Let you down. Haukur Sindri stundar nú nám í Danmörku sem væntanlega leiðir til BA-prófs og heitir á ensku „Music Production“. Feykir leitaði til Hauks Sindra og fékk hann til að svara nokkrum laufléttum Tón-lystar spurningum.