Endanleg liðsmynd að verða komin fyrir leiktíðina
Körfuknattleiksdeild Tindastóls hefur komist að samkomulagi við bandarískan leikmann að nafni Myron Dempsey fyrir næsta tímabil í Domino's deild karla. Í fréttatilkynningu segir að Myron sé nýliði í atvinnumennsku en stjórn körfuknattleiksdeildarinnar telur að hann sé sá leikmaður sem liðinu vanti fyrir komandi átök.
Myron er 23 ára, 2.03 cm og 102 kg og kemur hann frá Paul Quinn skóla í Dallas. Í fréttatilkynningu segir að hann hafi leikið frábærlega með þeim skóla, alls 29 leiki og var með í þeim 24,2 stig, 9,1 frákast og tvær stoðsendingar í leik.
„Telur stjórn Kkd að endanleg mynd sé að verða komin á mannskapinn fyrir leiktíðina og er ekki hægt annað en að fara að láta sér hlakka til vetrarins,“ segir loks í tilkynningunni.
Hér er hægt að sjá Myron á æfingu í síðustu viku.
http://youtu.be/GKXCH-QY87U