HSB og HS sameinaðar í Heilbrigðisstofnun Norðurlands

Heilbrigðistofnanirnar á Blönduósi og Sauðárkróki verða sameinaðar í Heilbrigðisstofnun Norðurlands, ásamt heilbrigðisstofnuninni í Fjallabyggð, heilsugæslustöðvunum á Dalvík og Akureyri og Heilbrigðisstofnun Þingeyinga. Þetta kemur fram í tilkynningu sem heilbrigðisráðherra sendi frá sér í gær.

Heilbrigðisráðherra hefur gerfið út reglugerð um frekari sameiningu heilbrigðisstofnana en samkvæmt henni verða stofnanir sameinaðar í þremur heilbrigðisumdæmum.

„Með þessu telst lokið sameiningu heilbrigðisstofnana í  öllum heilbrigðisumdæmum landsins, eins lög um heilbrigðisþjónustu nr. 40 frá 2007 gera ráð fyrir,“ segir á vef velferðaráðuneytisins.

Heilbrigðisstofnanirnar á Blönduósi, Sauðárkróki, Fjallabyggð, heilsugæslustöðvarnar á Dalvík og Akureyri og Heilbrigðisstofnun Þingeyinga verða sameinaðar í Heilbrigðisstofnun Norðurlands.

Heilbrigðisstofnun Vestfjarða og Heilbrigðisstofnunin á Patreksfirði verða sameinaðar í Heilbrigðisstofnun Vestfjarða.

Heilbrigðisstofnanir Suðausturlands, Suðurlands og í Vestmannaeyjum verða sameinaðar í Heilbrigðisstofnun Suðurlands.

Sameiningarnar taka gildi 1. október og taka þá nýir forstjórar við hinum sameinuðu stofnunum. Stöður forstjóranna þriggja verða auglýstar lausar til umsóknar og er umsóknarfrestur til 1. ágúst.

Þá segir að í aðdraganda sameininganna munu verðandi forstjórar, ásamt starfsmönnum ráðuneytisins, hafa samráð við sveitarstjórnarmenn á viðkomandi svæðum.

„Markmiðið með sameiningu heilbrigðisstofnana er að styrkja rekstrar- og stjórnunareiningar, auka öryggi í búa með góðri heilbrigðisþjónustu og nýta fjármuni betur. Með sameiningum færist ákvarðanataka í auknum mæli frá ráðuneyti til heimamanna,“ segir loks á vefnum.

 

Fleiri fréttir