Það er nóg um að vera á Norðurlandi vestra um Páskahelgina. Í dag, föstudag, er þar meðal annars að finna Fljótamót í skíðagöngu, guðþjónustur og lestur Passíusálma.
Það er nóg um að vera á Norðurlandi vestra um páskahelgina. Í dag, skírdag, er þar meðal annars að finna opnun á skíðasvæðinu í Tindastól, tvær bíósýningar, Norðurhvelsmót í Fifa og guðþjónustur.
Þrjár konur sem starfa við búskap og ferðaþjónustu í fyrrum Lýtingsstaðahreppi í Skagafirði hafa ákveðið að sameina krafta sína og efla afþreyingarmöguleika á svæðinu með því að bjóða ferðamönnum heim á býli, en verkefnið heitir einmitt „Boðið á býli.“
Í lokahófi kvikmyndahátíðarinnar Stockfish Film Festival, sem haldin var á dögunum, var tilkynnt um sigurvegara stuttmyndakeppninnar Sprettfiskur 2016. Var það myndin Like it’s up to you, eftir Brynhildi Þórarinsdóttur, sem er frá Frostastöðum í Skagafirði, eins og Feykir hefur áður greint frá.
Á aðalfundi Kvenfélagsins Heklu í Skagabyggð, sem haldinn var í gær gengu þrjár ungar konur til liðs við félagið. Tvær eru fæddar árið 2000 og verða því 16 ára á árinu. Aldursbilið er töluvert í félaginu, eða um 80 ár, því elsta félagskonan 96 ára í haust.
Óskar Pétursson, Eyþór Ingi Jónsson og Hjalti Jónsson halda Óskalagatónleika á Akureyri um páskana. Á tónleikunum geta gestir kallað upp sitt óskalag og fengið það flutt. Tónleikarnir fara fram í Akureyrarkirkju laugardaginn 26. mars kl. 20.00.
Mikil eftirvænting ríkir fyrir frumsýningu söngleiksins Súperstar, í uppfærslu Umf. Grettis og Kormáks, sem fer fram í Félagsheimilinu á Hvammstanga á morgun, miðvikudaginn 23. mars. Er þetta langstærsta sýningin sem sett hefur verið á svið á Hvammstanga fram til þessa.
Leikritið Mjallhvít og dvergarnir sjö, í flutningi 10. bekkjar Árskóla, var frumsýnt í Félagsheimilinu Bifröst þann 9. mars sl. Áætlað var að sýna alls átta sinnum en vegna mikilla vinsælda var boðið upp á tvær aukasýningar sl. mánudag en um 800 manns hafa séð leikritið að talið er. Það var Guðbrandur Ægir Ásbjörnsson sem leikstýrði.
Íbúar og velunnarar Hóla í Hjaltadal og Háskólans á Hólum komu saman til fundar þann 11. mars síðastliðinn. Í yfirlýsingu lýsa fundarmenn yfir miklum áhyggjum af áformum stjórnvalda sem meðal annars koma fram í minnisblaði framkvæmdahóps um Hóla í Hjaltadal dagsett 15. október 2025. Minnisblaðið hefur verið rætt í ríkisstjórn. Í yfirlýsingunni kemur fram að þær tillögur sem nú liggja fyrir hafa verið unnar án nokkurs samráðs við íbúa, almenna starfsmenn háskólans og aðra velunnara.
Menningarhús á Sauðárkróki, miðstöð menningar og sviðslista, hefur verið hluti af framtíðarsýn okkar í tvo áratugi. Með samningi sem undirritaður var vorið 2023 á milli ríkisins og sveitarfélagsins er bygging Menningarhúss komin í fastan farveg og áætluð verklok í lok árs 2027.
Hinn 9. desember 2025 voru liðin 120 ár frá fæðingu Guðmundar L. Friðfinnssonar, skáldbónda á Egilsá. Hann var fæddur á Egilsá 9. desember 1905, og voru foreldrar hans Friðfinnur Jóhannsson og Kristín Guðmundsdóttir. Guðmundur var búsettur á Egilsá alla ævi og stundaði þar búskap samhliða ritstörfum, sem hann sinnti jafnan í hjáverkum.
Herra Hundfúll fylgdist með keppni í Skólahreysti með öðru auganu nú á laugardaginn. Hann gladdist talsvert yfir gengi skólanna á Norðurlandi vestra. Varmhlíðingar voru sendir upp á svið til að taka við verðlaunum fyrir þriðja sætið en nemendur Grunnskóla Húnaþings vestra enduðu í fjórða sæti en með jafnmörg stig og Varmahlíðarskóli. En svo var farið að reikna ... aftur...
Að þessu sinni er það nokkuð síðbúin Jóla-Tón-lyst sem ber fyrir augu lesenda Feykis en það er Ragnar Þór Jónsson, þingeyskur gítarleikari með heimilisfang á Hofsósi, sem tjáir sig um tónlistina. Ragnar, sem er fæddur 1966, ólst upp í Aðaldal og bjó síðan í 30 ár á Húsavík. Fyrir nokkrum árum kynntist hann síðan Dagmar Ásdísi Þorvaldsdóttur og flutti í framhaldi af því á Hofsós.