Tindastóll tekur á móti Njarðvík í síðasta leik sínum fyrir jólafrí í kvöld í Síkinu kl. 19.15. Fyrir leikinn, verður haldinn stuðningsmannafundur með ársmiðahöfum körfuknattleiksdeildar, þar sem þjálfari og stjórnarmenn ...
Að venju verður haldinn áramótadansleikur í Félagsheimilinu á Blönduósi þar sem Hljómsveit Geirmundar Valtýssonar mun halda uppi fjöri fram á nótt.
Búast má við því að skagfirsk ungmenni leggi leið sína yfir til nágranna s...
Þau eru ekki falleg veðurkortin en spáin gerir ráð fyrir norðvestan 8-13 og skýjað með köflum. Frost 2 til 10 stig. Hvessir á morgun, norðan 18-23 síðdegis. Snjókoma eða él.
Félags-og tómstundanefnd Skagafjarðar hefur samþykkti að Hvatapeningagreiðslur nemi 8.000.- krónum á næsta ári en þær hafa hingað til verið 10.000 krónur.
Foreldrar allra barna á aldrinum 6-18 ára með lögheimili í Sveitarféla...
Félags- og tómstundanefnd Skagafjarðar hefur samþykkt að stytta opnunartíma bæði í Húsi Frítímans og í Sundlaug Sauðárkróks en nefndin mun skera niður á ýmsum sviðum næsta ár.
Hús Frítímans mun á nýju ári verða opið ...
Heimasíða körfuknattleiksdeildar Tindastóls hefur tekið saman niðurstöður 2. umferðar Íslandsmóts yngri flokkanna. Árangur okkar liða er viðunandi og til gamans og fróðleiks, eru árangursmarkmið unglingaráðs sett með umsögnum...
Mbl. segir frá því að alls voru greiddar 405 milljónir króna í sektir vegna brota Haga, Kjarnafæðis, Kjötbankans, Kjötafurða-stöðvar KS, Norðlenska, Reykjagarðs og Sláturfélags Suðurlands á samkeppnislögum.
Verðmerkingum umr...
Helgi Rafn Viggósson fær áminningu en honum var vikið af velli í leik Keflavíkur og Tindastóls í Iceland Express-deild karla þann 10. desember.
Hinn kærði, Helgi Viggósson, Tindastóli, skal sæta áminningu vegna háttsemi sinnar í ...
Nýtt skólaár er spennandi tími fyrir börnin okkar en tilfinningarnar geta verið misjafnar. Sum mæta full tilhlökkunar, önnur með smá hnút í maganum og mörg einhvers staðar mitt á milli. Nemendur mæta til náms með ólíkar þarfir, styrkleika og reynslu og er það verkefni skólanna að skapa þeim öruggt og hvetjandi námsumhverfi með fjölbreyttum tækifærum til að vaxa og þroskast. Þó að skólinn gegni stóru hlutverki í lífi barna og ungmenna stendur hann ekki einn að þessu verkefni. Menntun og uppeldi barna er alltaf sameiginlegt verkefni heimilis og skóla.
Verkalýðshreyfingin á að styðja aðildarviðræður Íslands við Evrópusambandið – ekki vegna þess að niðurstaðan sé fyrirfram ákveðin, heldur vegna þess að íslenskt launafólk á rétt á því að sjá hvaða möguleikar felast í aðild og semja um hagsmuni sína við borðið. Verkalýðshreyfingin hefur aldrei verið hrædd við breytingar. Hún hefur hins vegar alltaf spurt sömu grundvallarspurningarinnar: Hvað þýðir þetta fyrir kjör fólksins sem við erum að verja? Þess vegna eigum við að styðja að nýjar aðildarviðræður við Evrópusambandið hefjist. Við eigum að vera við borðið, Ísland er þegar hluti af innri markaði Evrópu í gegnum EES-samninginn.
Ísland er eitt ríkasta land Evrópu. Samkvæmt Eurostat var landsframleiðsla á mann hér á landi árið 2025, leiðrétt fyrir verðlagi, 28% yfir meðaltali ESB. Alþingi fer með skattlagningar- og fjárveitingarvaldið en ríkisstjórnin leggur fram frumvarp til fjárlaga. Vilji Alþingi verja meiri fjármunum til atvinnuuppbyggingar, innviða og byggðaþróunar um land allt hefur það fulla heimild til þess. Til þess þarf hvorki ESB-aðild né leyfi frá Brussel.
Herra Hundfúll er pínu leiður – semsagt kannski ekki alveg hundfúll – yfir því að Vísnakeppni Safnahúss Skagfirðinga hafi fallið niður þessa Sæluvikuna. Það er Safnahúsið sem stendur fyrir keppninni en það þarf alltaf að finna einhvern sem hefur umsjón með henni. Því miður fannst enginn að þessu sinni sem var tilbúinn til að taka við keflinu.
Að þessu sinni er það íbúi í Kópavogi sem svarar Tón-lystinni, Gunnar Sigfús Björnsson, bassaleikari af árgangi 1991. „Ég er fæddur á Sauðárkróki og uppalinn að miklu leyti á Varmalæk í Lýtingsstaðahrepp. Foreldrar mínir eru Björn Sveinsson frá Varmalæk og Sólveig Sigríður Einarsdóttir frá Mosfelli. Ég flutti að Mosfelli í Austur-Húnavatnssýslu fyrir grunnskóla og var í Húnavallaskóla en var þó mikið í Skagafirði líka,“ segir Gunnar Sigfús.