Fréttir

Högni og Jódís verða í efstu tveimur hjá Miðflokknum í Skagafirði

Skagafjarðardeild Miðflokksins hefur tilkynnt um framboð til sveitarstjórnarkosninga 2026. Í tilkynningu segir að Högni Elfar Gylfason varaþingmaður Miðflokksins í Norðvesturkjördæmi muni skipa oddvitasætið. Högni er sauðfjárbóndi, vélfræðingur og vélvirkjameistari. Í öðru sæti verður Jódís Helga Káradóttir, formaður Ungliðahreyfingar Miðflokksins á Norðurlandi vestra. Jódís stundar nám í viðskiptalögfræði og er starfsmaður Héraðsdóms Norðurlands vestra. Skipan í önnur sæti listans verður birt áður en langt um líður.
Meira

Fiskikökur og heimagerð pizza a la Siggi | Matgæðingar Feykis

Matgæðingarnir í tbl. 37, 2025, voru þau Helga Rós Sigfúsdóttir og Sigurður Óli Ólafsson. Helga og Siggi búa í Varmahlíð með börnunum sínum þremur, Kolbrá Sigrúnu, Mikael Mána og Hrafnhildi Hörpu. Siggi er byggingatæknifræðingur og vinnur hjá Stoð ehf. og Helga Rós er grunnskólakennari og vinnur í Varmahlíðarskóla. 
Meira

Að fylgja plani | Leiðari 8. tölublaðs Feykis

Nú eru um fjögur ár síðan Rússar réðust inn í Úkraínu og hófu þar með stríð sem fáir skilja eitthvað í. Tilgangurinn virðist einfaldlega hafa verið sá að gera Rússland stórkostlegt að nýju og Pútin og Trump kyrja því kannski sama sönginn þegar öllu er á botninn hvolft.
Meira

Ertu klár í golfsumarið? | Halldóra Cuyler skrifar

Sumarið er tíminn, orti Bubbi okkar Morthens og ég get lofað ykkur því að til sumarsins hugsa flestir eða allavega golfarar! Það er nefnilega þannig að á sumrin spretta upp gorkúlur á nöfunum (lesist golfkúlur), nánar tiltekið á Hlíðarendavelli (og þar í kring). Og ég get lofað ykkur því að það stelur hjörtum fullum af þrá með tvöföldum skollum, þrípúttum og týndum boltum. En það er bara eins og það er.
Meira

Í dag glitrum við með Einstökum börnum

Föstudaginn 27. febrúar – í dag – verður glitrandi dagur í flestum ef ekki öllum grunnskólum á Norðurlandi vestra en þann dag ætlum nemendur og kennarar að glitra með Einstökum börnum og vekja þannig athygli á degi sjaldgæfra sjúkdóma og heilkenna.
Meira

Farsældarráð Norðurlands vestra fundaði í fyrsta sinn

Á fyrsta fundi farsældarráðs Norðurlands vestra, sem haldinn var í gær, 26. febrúar 2026, á Harbour á Skagaströnd, komu saman fulltrúar allra sveitarfélaga, þjónustuveitendur og stofnanir sem sitja í ráðinu sem og fulltrúi foreldra. Í frétt á vef SSNV segir að fundurinn hafi verið stuttur en hann marki áframhaldandi skref í átt að aukinni farsæld barna í landshlutunum.
Meira

Geks og Brodnik fá ekki leikheimild með Íslandi

Í fréttum í gær var sagt frá því að körfuboltakapparnir Jaka Brodnik og Davis Geks, sem báðir eru með flunkuný íslensk vegabréf eftir að hafa sótt um íslenskan ríkisborgararétt. fá ekki leyfi frá FIBA (Alþjóða körfuknattleikssambandinu) til að spila fyrir landslið Íslands á þeim forsendum að þeir hafi spilað of marga U20 landsleiki fyrir annað land. Það er kannski ekki sama hvort þú ert Jón eða séra Jón?
Meira

Ásgeir laumast inn um gættina

Það eru alltaf tíðindi þegar Ásgeir Trausti frá Laugarbakka sendir frá sér nýja breiðskífu en það var einmitt það sem hann gerði nú seinni partinn í febrúar. Skífan ber nafnið Julia og er hans fimmta hljóðversskífa og líkt og áður þá tekst honum ljómandi upp við búa til lög sem hægt og rólega lauma sér í vitund hlustandans.
Meira

Umsókn um styrk vegna viðburðar á Sæluviku

Vakin er athygli á því að hægt er að sækja um styrki fyrir viðburði á Sæluviku, sem fer fram dagana 12. – 19. apríl nk.
Meira

„Stemningin hefur verið frábær allt tímabilið“

Bónus deild kvenna hefur nú verið skipt upp í efri og neðri hluta og hófst keppni í vikunni. Lið Tindastóls sat hjá í fyrstu umferð en Stólastúlkur heimsækja Garðabæinn á laugardaginn þar sem leikur gegn Stjörnunni bíður þeirra. Feykir heyrði hljóðið í Israel Martín í morgun og spurði hann meðal annars út í leynivopn.
Meira