Fréttir

Opnað fyrir umsóknir í Lóu – nýsköpunarstyrki fyrir landsbyggðina

Umsóknarfrestur um Lóu, nýsköpunarstyrki fyrir landsbyggðina, er til og með 30. mars 2026. Styrkirnir eru ætlaðir verkefnum sem komin eru af byrjunarstigi, auk verkefna sem styðja við uppbyggingu vistkerfis nýsköpunar og frumkvöðlastarfs á forsendum svæðanna. Nánari upplýsingar og umsóknarform er að finna hér.
Meira

Annar skellur hjá Stólunum í Lengjubikarnum

Tindastólsmenn léku annan leik sinn í Lengjubikarnum í gærkvöldi en andstæðingarnir voru góðvinir Stóla frá Grenivík. Síðast þegar liðin mættust fóru um 25 spjöld á loft hjá dómara leiksins en að þessu sinni voru þau aðeins ellefu. Það breytti þó ekki niðurstöðunni því venju samkvæmt höfðu Magnamenn betur. Lokatölur 4-1.
Meira

Fljótlegt gúllas og kryddbrauð | Matgæðingar Feykis

Matgæðingarnir í tbl. 39, 2025, eru að þessu sinni Lilja Rún Bjarnadóttir og Einar Kári Magnússon. Lilja Rún er Skagfirðingur í húð og hár en Einar Kári er innfluttur. Þau fluttu í Garðhús í Skagafirði fyrir 12 árum og búa þar ásamt börnunum þeirra þrem, Baldri Frey, Andra Fannari og Heiðdísi Emblu.
Meira

Hanne Smidesang fór með sigur í slaktaumatölti Meistaradeildar KS

Keppni í slaktaumatölti í Meistaradeild KS fór fram í Svaðastaðahöllinni sl. föstudagskvöld. Hanne Smidesang sigraði á Tóni frá Hjarðartúni með einkunnina 8,38. Það var síðan lið Þúfna sem varð stigahæsta lið kvöldsins með 72 stig en að loknum tveimur mótum er lið Hrímnis/Hestakletts stigahæst í liðakeppninni með 128 stig.
Meira

Éljagangur og norðanstrekkingur í dag

Leiðindaveður gengur nú yfir landið en það eru einkum Austfirðingar sem fá að finna fyrir því en appelsínugul veðurviðvörun er í dag fyrir Austurland og Austfirði. Gul viðvörun er fyrir Norðurland eystra en Norðurland vestra virðist ætla að sleppa betur frá þessu skoti. Á svæðinu má þó reikna með norðvestan 10-15 m/sek í dag og éljagangi eða lítilsháttar snjókomu eftir hádegi.
Meira

Frábær liðsframmistaða Stólastúlkna í Garðabænum

Stólastúlkur mættu fámennar til leiks í Garðabæinn í gær þar sem þær hittu fyrir lið Stjörnunnar í þriðja skiptið í Bónus deildinni þennan veturinn. Það var hins vegar ekkert vesen á þeim átta stúlkum sem klæddust þeim rústrauða, þær voru allar klárar í slaginn og rúlluðu upp liði Stjörnunnar þegar upp var staðið. Lokatölur 66-90.
Meira

Augnablik lagði lið Húnvetninga

Í gær lék lið Kormáks Hvatar leik númer tvö í Lengjubikarnum á þessu undirbúningstímabili en þá urðu Húnvetningar að sætta sig við naumt 3-2 tap gegn liði Augnablika. Á Aðdáendasíðunni segir að sem fyrr sé liðið skipað kornungum leikmönnum heimanað, sem eru að sýna á sér mjög efnilegar hliðar í þessum leikjum.
Meira

Óvæntur ratleikur í Njarðvík fékk fallegan endi

Árni Heiðar Grímsson er Eyfirðingur með búsetu í Grafarvoginum í Reykjavík en hann er upphaflega frá Stóra Dal í Eyjafirði. Hann starfar sem tæknimaður hjá Advania. „Yfirtæknimaður jafnvel,“ bætir hann við. Árni Heiðar segir frá liðinu sínu í Enska boltanum að þessu sinni en byrjar á að gera grein fyrir sjálfum sér af eyfirsku lítillæti.
Meira

Mini taco veisla og auðveldur eftirréttur | Matgæðingar Feykis

Það voru Brynja og Hannes sem skoruðu á matgæðinga í tbl. 38, 2025, en það voru þau Matthildur Kemp og Bjarni Páll, þau þakka þeim kærlega fyrir. Matthildur og Bjarni eru bæði frá Sauðárkróki og búin að vera kærustupar síðan í grunnskóla. Þau fluttu saman til Reykjavíkur til að stunda nám, Matthildur er að læra tannlæknisfræði í HÍ og Bjarni er í mastersnámi í byggingarverkfræði í DTU í Danmörku, þau útskrifast bæði næsta sumar!
Meira

Skagafjörður fyrir unga fólkið | Jódís Helga Káradóttir skrifar

Ég tilheyri þeirri kynslóð sem stendur frammi fyrir raunverulegu vali, að flytja burt eða að taka þátt í að byggja upp. Ég hef valið að byggja upp, hér í Skagafirði. Það geri ég af því að ég sé tækifærin sem felast í samfélagi sem er nógu stórt til að vera öflugt en nógu lítið til að hver rödd skipti máli. Skagafjörður hefur sterka ímynd, sögu, öflugt atvinnulíf og ríkulegt menningar- og íþróttastarf. En framtíðin mótast ekki af sjálfu sér. Hún krefst staðfestu og ábyrgðar. Ef við viljum að fleira ungt fólk taki þá ákvörðun að setjast hér að, stofna heimili og byggja upp lífsviðurværi, þurfum við að hafa skýra sýn og staðfestu í framkvæmd.
Meira