Fréttir

Fékk fyrstu plötu HLH í fermingargjöf / DR. GUNNI

Að þessu sinni er það Gunnar Lárus Hjálmarsson úr Reykjavíkurhreppi, betur þekktur sem Dr. Gunni, sem tekst á við Tón-lystina. Doktorinn spilar á gítar, bassa og ukulele en til helstu tónlistarafreka sinna telur hann Prumpulagið og Glaðasta hund í heimi og að hafa verið í hljómsveitunum S.H. Draumur og Unun og reyndar ýmislegt fleira. Gunni er alinn upp í Kópavogi en hver er þá tenging hans norður? „Pabbi er frá Skagafirði, bjó í Bakkakoti í Lýtingsstaðarhreppi. Við systkinin höfum tvisvar á síðustu tveimur árum farið á æskuslóðirnar með gamla með. Ég fíla Skagafjörð í botn. Reyni að komast þangað á hverju sumri og á enn eftir að fara upp á Mælifellshnjúk í almennilegu skyggni. Þegar ég fór upp sást ekki neitt fyrir þoku,“ segir hann
Meira

Snjóþekja eða hálka á vegum

Snjóþekja eða hálka er á vegum í Norðurlandi og éljagangur í Skagafirði. Norðan 5-10 m/s er á Ströndum og Norðurlandi vestra, lægir á morgun og styttir upp að mestu þegar líður á daginn. Kólnandi veður, frost 5 til 13 stig síðdegis.
Meira

Soroptimistaklúbburinn Við Húnaflóa býður stúlkum á sjálfstyrkingarnámskeið

Soroptimistaklúbburinn Við Húnaflóa bauð öllum stelpum á 12. aldursári í fimm sveitarfélögum í Húnavatnssýslum kostur á að sækja námskeið helgina 24. – 25. október síðastliðinn. Námskeiðið köllum við „Stelpur geta allt“ en markmiðið með því er að styrkja sjálfsmynd ungra stelpna. Kennsla, matur, gisting og afþreying var í boði klúbbsins.
Meira

Hunda- og kattahreinsun á Sauðárkróki

Hunda- og kattahreinsun fer fram í þjónustumiðstöð sveitarfélagsins að Borgarflöt 27 Sauðárkróki nú í dag 12. janúar, í gamla RKS húsinu. Á vef svetiarfélagins kemur fram að kettir séu kl. 17-18 og hundar kl. 18-19. Eigendur eru beðnir að hafa með sér kvittun hafi þeir greitt leyfisgjald fyrir árið 2015.
Meira

Húnahornið stendur fyrir vali á manni ársins í A-Hún

Húnahornið stendur nú fyrir vali á manni ársins í Austur-Húnavatnssýslu í ellefta sinn og stendur valið til til miðnættis 22. janúar nk. Úrslit verða kynnt á Þorrablóti Vökukvenna á Blönduósi, laugardaginn 23. janúar.
Meira

Nýr rekstraraðili á Laxá á Ásum árið 2017

Framundan eru miklar breytingar við Laxá á Ásum, en frá og með sumrinu 2017 verður sala veiðileyfa, markaðssetning og rekstur veiðihússins í höndum Sturlu Birgissonar. Þarna er verið að taka upp fyrirkomulag sem kallað hefur verið Norðurármódelið, þ.e.a.s. leigutakar koma ekki við sögu, heldur sölufulltrúi. Þetta kemur fram á vefnum votnogveidi.is.
Meira

Ljósadagurinn haldinn í annað sinn

Ljósadagurinn er haldinn í annað sinn í dag, þriðjudaginn 12. janúar, en þá er kveikt á útikertum eða luktum til minningar um látna ástvini. Hugmyndin að Ljósadegi kom upp í kjölfar táknræns gjörnings dagana eftir að Anna Jóna Sigurbjörnsdóttir og Skarphéðinn Andri Kristjánsson létust í kjölfar slyss sem varð 12. janúar 2014.
Meira

Yfir 3000 miðar seldir á Landsmót hestamanna

Rúmlega 3000 miðar eru seldir á Landsmót hestamanna sem fer fram á Hólum í Hjaltadal dagana 27. júní - 3. júlí. Að sögn Áskels Heiðars Ásgeirssonar hefur miðasalan gengið framar björtustu vonum. „Við ætluðum okkur að selja 1200 miða sem hefði verið tvöföldun á fjölda miða í forsölu frá síðasta móti. Núna eru hinsvegar seldir miðar á mótið komnir yfir 3.000, langflestir þeirra eru vikupassar,“ segir Áskell Heiðar. Um 70% kaupenda eru íslenskir en um 30% erlendis frá.
Meira

Hótelbygging á Flæðunum tekin til deiliskipulagsmeðferðar

Skipulags- og byggingarnefnd Svf. Skagafjarðar hefur samþykkt að taka hótelbyggingu, á Flæðunum við Faxatorg á Sauðárkróki, til deiliskipulagsmeðferðar. Það er fyrirtækið Hymir ehf. sem hefur sótt um lóð undir hótelbygginguna en áform eru uppi um að reisa þar 60 til 80 herbergja hótel. Sömu aðilar standa á bakvið framkvæmdir við Gönguskarðsá en Hymir ehf. og Íslandsvirkjun eru hvor tveggja í eigu Ölnis ehf.
Meira

N4 í Norrænt samstarf

Sjónvarpsstöðin N4 á Akureyri hefur fengið styrk frá verkefnasjóði NORA, sem heyrir undir Norrænu ráðherranefndina, til að koma á fót samstarfi um gerð sjónvarpsþáttanna Á norðurslóðum - I norden, frá Íslandi, Grænlandi, Færeyjum og Norður-Noregi með það að markmiði að kynna líf, menningu, lífshætti og störf á norðurslóðum og miðla því á frummáli á alþjóðlegum vettvangi.
Meira