Skagafjörður

Nýtt nám í gestamóttöku og stjórnun við ferðamáladeild

Í tilefni af tuttugu ára starfsafmæli Ferðamáladeildar Háskólans á Hólum var mánudaginn 3. október haldin afmælisráðstefna undir yfirskriftinni „Menntun framtíðarleiðtoga í ferðaþjónustu“. Þar var tilkynnt að frá og með haustinu 2017 fyrirhugar deildin að bjóða upp á nám til BA gráðu í gestamóttöku og stjórnun (e. hospitality management). Með því er leitast við að mæta þörfum atvinnugreinarinnar fyrir menntað starfsfólk og stjórnendur á þessu sviði. Sem fyrr mun deildin bjóða það nám sem fyrir er þ.e. nám til BA gráðu í ferðamálum með áherslu á náttúru og menningu, diplómur í viðburðastjórnun og ferðamálafræði sem og rannsóknatengt meistaranám í ferðamálafræði.
Meira

Danssýning Árskóla fór fram í gær- Myndband

Það var margt um manninn þegar krakkarnir í Árskóla á Sauðárkróki héldu danssýningu í tílefni af dansmaraþoni 10. bekkjar. Hver árgangurinn á fætur öðrum steig fram á dansgólfið og brá fyrir sig betrifætinum og sveiflaði sér í hringi. Í danssýningunni taka allir bekkir skólans þátt og er mikil eftirvænting hjá krökkunum eftir að þeirra atriði byrjar.
Meira

Október verður mildur með suðlægum áttum og fremur hlýr

Þriðjudaginn 4. október 2016 komu félagar í Veðurklúbbnum á Dalbæ saman til fundar. Fundurinn hófst kl. 14:00. Fundarmenn voru 12 talsins. Fundinum lauk kl. 14:20. Fundurinn var óvenju stuttur þar sem félagar voru á einu máli um veðurfar og án nokkurrs vafa um veðurhorfur í mánuðinum. Að venju var farið yfir síðustu verðurspá og almenn ánægja með hversu vel hún hefði gengið eftir.
Meira

Gervigras í stað fjölnota húss

Við brotthvarf litla íþróttasalarins við gamla barnaskólann á Sauðárkróki hefur aðsókn í íþróttahúsið aukist svo um munar að það annar ekki eftirspurn eftir tímum í húsinu. Vegna þess sem og hvernig vetraræfingastaða íþróttafólks er háttað í dag ákvað byggðarráð Sveitarfélagsins Skagafjarðar að beina því til sviðstjóra veitu- og framkvæmdasviðs að hafin verði hönnun og kostnaðarmat þess að setja gervigras á norðurhluta æfingasvæðis við íþróttavöllinn á Sauðárkróki.
Meira

Lilli klifurmús á leiðinni

Þessa dagana standa yfir æfingar hjá Leikfélagi Sauðárkóks á barnaleikritinu Dýrin í Hálsaskógi eftir Thorbjörn Egner. Leikstjóri er Bergdís Júlía Jóhannsdóttir og áætlaður frumsýningar dagur 27. október.
Meira

Dansmaraþon 10. bekkjar hafið

Hið árlega og sívinsæla dansmaraþon 10. bekkinga Árskóla á Sauðárkróki hófst kl. 11 í morgun og er nú komið að árgangi 2001 að teygja skankana í sólarhring. Danssýning allra nemenda klukkan 17:00 í íþróttahúsinu.
Meira

Ástin, drekinn og dauðinn

Í tilefni af bleikum október mánuði taka Sauðárkrókskirkja og Krabbameinsfélag Skagafjarðar höndum saman og bjóða til fyrirlestrar með Vilborgu Davíðsdóttur í safnaðarheimilinu þann 12.október kl. 20:00.
Meira

Lært í þrívídd og sýndarveruleika

Árskóli á Sauðarkróki hefur, fyrstur skóla landsins, tekið í notkun sýndarveruleikagleraugu sem opnar á óþrjótandi möguleika í allri kennslu skólans. Auk gleraugnanna voru keyptir snjallsímar sem hluti búnaðar og myndavél sem hentar til verkefnavinnu nemenda.
Meira

Skólarnir á Hofsósi undir eitt þak

Fyrir skömmu voru færðar af því fréttir að mygla hafi fundist í húsnæði leikskólans á Hofsósi sem síðar kom í ljós að var ekki hættuleg. En sem leikskóli hefur húsnæðið ekki þótt viðunandi og þarfnast það verulegra úrbóta. Á fundi byggðaráðs í síðustu viku kom fram að mikilvægt væri að leysa húsnæðismálin til framtíðar.
Meira

Arnar Már Elíasson ráðinn forstöðumaður fyrirtækjasviðs Byggðastofnunar

Fyrir skömmu var auglýst starf forstöðumanns fyrirtækjasviðs Byggðastofnunar. Alls bárust 20 umsóknir og hefur Arnar Már Elíasson verið ráðinn í starfið. Á vef Byggðastofnunar segir að Arnar Már hafi mikla reynslu af banka og útlánastarfsemi þar sem hann hafi starfað hjá Íslandsbanka og sem lánastjóri og fyrirtækjafulltrúi hjá SPRON.
Meira