Högni og Jódís verða í efstu tveimur hjá Miðflokknum í Skagafirði
feykir.is
Skagafjörður
28.02.2026
kl. 11.27
Skagafjarðardeild Miðflokksins hefur tilkynnt um framboð til sveitarstjórnarkosninga 2026. Í tilkynningu segir að Högni Elfar Gylfason varaþingmaður Miðflokksins í Norðvesturkjördæmi muni skipa oddvitasætið. Högni er sauðfjárbóndi, vélfræðingur og vélvirkjameistari. Í öðru sæti verður Jódís Helga Káradóttir, formaður Ungliðahreyfingar Miðflokksins á Norðurlandi vestra. Jódís stundar nám í viðskiptalögfræði og er starfsmaður Héraðsdóms Norðurlands vestra. Skipan í önnur sæti listans verður birt áður en langt um líður.
Meira
