Fréttir

Miðasala á sjöundu Jólin heima að hefjast

Undirbúningur fyrir jólatónleika í Miðgarði er hafinn og miðasala fer af stað í vikunni. Miðasala á jólatónleikana Jólin heima 2026 í Miðgarði hefst fimmtudaginn 1. okt. í gegnum auglýsingahlekk á Feyki.is. Tónleikarnir fara fram í Menningarhúsinu Miðgarði laugardagskvöldið 12. desember.
Meira

Tölum um heilabilun – fræðsla fyrir íbúa | Thelma Jónsdóttir skrifar

Í næstu viku koma fulltrúar frá Heilahjálp – samtökum um heilabilun (áður Alzheimersamtökin) og halda fræðsluerindi fyrir íbúa og fagfólk á Sauðárkróki og Hvammstanga. Markmiðið er að auka þekkingu og opna umræðu um heilabilun, sem snertir þúsundir Íslendinga og fjölskyldur þeirra.
Meira

Keflavíkurliðið mætir Stólastúlkum í Síkinu í kvöld

Bónus deild kvenna hefst í kvöld með þremur leikjum. Lið Tindastóls fær lið Keflavíkur í heimsókn og hefst leikurinn kl. 19:15 og þeir sem mæta tímanlega getir gripið borgara af grillinu. Spá formanna, fyrirliða og þjálfara var kynnt fyrir helgi og þar bar svo við að liði Tindastóls var spáð ofar í deildinni en gestunum úr Keflavík og það er nú saga til næstu bæja.
Meira

Belmonte og Trausti þóttu bestir hjá Kormáki Hvöt

Lið Kormáks Hvatar átti ágætt sumar í 2. deildinni í sumar, endaði í áttunda sæti eftir að hafa daðrað við toppbaráttuna um mitt sumar. Sömuleiðis koms lið Húnvetninga í undanúrslit í Gatorade-bikarnum en féll úr leik eftir vítakeppn gegn liði Hauka. Knattspyrnudeild Kormáks Hvatar hélt að sjálfsögðu lokahóf að loknu móti og þar var Pere Belmonte valinn besti leikmaðurinn og Trausti Þorgilsson besti ungi leikmaðurinn.
Meira

Það er bleytuveður í dag en þetta lagast

Hausttilboð Veðurstofunnar síðustu daga hefur að mestu verið rok og rigning, þokubakkar og þung ský. Ekki beinlínis uppörvandi tilboð og reikna má með að svipaða sögu verði að segja í dag og fram eftir morgnundeginum. En eins og skáldið góða, Helgi Bjöss, benti á í upphafi Covid-faraldursins, þá styttir alltaf upp og samkvæmt veðurspám þá má reikna með að einmitt það gerist seinni part miðvikudags, Sæmilegustu hlýindi og sólargeislar fá stærri rullu fram á sunnudag.
Meira

Lögreglan er sátt við helgina

Á Facebooksíðu Lögreglunnar á Norðvesturlandi má lesa þessa ánægjulegu færslu: „Laufskálaréttarballið, fjölmennasti dansleikur svæðisins ár hvert, var haldið í gærkvöldi. Þar koma jafnan saman hátt í 1.000 manns og því skiptir miklu máli að allir leggist á eitt um að skapa öruggt umhverfi.
Meira

Skagfirsk hlaupakona í landsliðinu

Íslenska landsliðið í bakgarðshlaupum hefur verið valið fyrir HM sem fer fram í næsta mánuði. Íslandsmethafinn Þorleifur Þorleifsson er í liðinu og einnig er þar að finna hlaupadrottninguna Mari Järsk. Fimmtán hlauparar munu hlaupa fyrir Íslands hönd á HM landsliða sem hefst þann 17. október næstkomandi í 74 löndum.
Meira

Sigurdís snýr heim með nýja plötu

Tónskáldið, píanóleikarinn og söngkonan Sigurdís Tryggvadóttir frá Ártúnum í Blöndudal snýr aftur á heimaslóðir með sína fyrstu plötu, Bergmál fjallanna. Sigurdís verður með þrenna útgáfutónleika á Norðvesturlandi af þessu tilefni. Hún hefur leikinn í Blönduóskirkju 31.okt. kl: 14. 1.nóv. verður hún í Hvammstangakirkju kl: 14. Tónleikaröðinni lýkur svo Miðgarði í Varmahlíð 4. nóv. og hefjast tónleikarnir kl. 20. Aðgangur er ókeypis. Tónleikarnir vara í klukkustund og boðið verður upp á vöfflukaffi að tónleikum loknum.
Meira

Risarnir frá Litháen lagðir í parket

Tindastólsmenn gerðu sér lítið fyrir og lögðu lið BC Jonava í Litháen í dag þegar Stólarnir spiluðu annan leik sinn í ENBL-deildinni þetta tímabilið. Arnar þjálfari var ánægður með liðið sitt og benti á í samtali við Feyki að þarna hefðu Stólarnir verið að spila við risalið frá einni stærstu körfuboltaþjóð Evrópu. „Það er mjög stórt fyrir íslenskt lið að koma og vinna lið í efstu deild í Litháen,“ sagði Arnar og jaðraði við að hann væri pínu montinn. Leikurinn var lengstum jafn en okkar menn voru sterkari á endasprettinum og unnu leikinn 71-77.
Meira

Hlekkur á leik BC Jonava og Tindastóls

Evrópurúntur Tindastóls heldur áfram en í dag kl. 13:45 hefst annar leikur okkar manna í ENBL-deildinni. Andstæðingarnir í dag eru lið BC Jonava frá Litháen. Hægt er að finna hlekk á leikinn þegar fréttin er skoðuð nánar en beint streymi er á Tindastóll TV.
Meira