Pere og Fede yfirgefa lið Kormáks Hvatar
feykir.is
Austur-Húnavatnssýsla, Íþróttir, Vestur-Húnavatnssýsla, Lokað efni
26.10.2026
kl. 15.32
Fótboltavertíðinni á Íslandi lauk nú um liðna helgi en þá var síðasta umferðin spiluð í Bestu deild karla. Þar gerðust þau undur að lið KA féll niður í Lengjudeildina en vinir þeirra í Þór héldu sæti sínu. Það er sjaldan ró og friður í fótboltanum og vertíðinni ekki fyrr lokið en farið er að huga að næsta tímabili. Á Aðdáendasíðu Kormáks Hvatar má sjá að Húnvetningar verða að horfa á eftir þeim Pere Belmonte og Fede Russo yfir í lið Hauka í Hafnarfirði sem tryggðu sér sæti í Lengjudeildinni nú í haust.
Meira
