Fréttir

Myndlistasýning barna í Hillebrandtshúsi á Blönduósi

Barnamenningarhátíðin Skúnaskrall er í fullum gangi á Norðurlandi vestra. Hátíðin hófst 21. október og stendur hún til 4. nóvember, undir yfirskriftinni Öll saman. Nú á föstudaginn opnar myndlistasýning í Hillebrandtshúsinu á Blönduósi en þema hennar er Börn.
Meira

Sóknarleikurinn í molum gegn vörn Valsstúlkna

Lið Vals kom í Síkið í gærkvöldi í fimmtu umferð Bónus deildar kvenna. Fyrir leik var vitað að lið Tindastóls yrði án Quinzey Fulmore, stóra bandaríska leikmannsins, sem hafði yfirgefið liðið. Þetta nýttu gestirnir sér heldur betur, lokuðu teignum og þar sem skotnýting utan 3ja stiga línunnar var ekki til að hrópa húrra yfir þá gekk sóknarleikurinn vægast sagt brösuglega hjá Stólastúlkum. Lokatölur 46-72.
Meira

Áhrif flóða í Miklavatni í Fljótum eru margvísleg

Ósinn við Miklavatn í Fljótum er enn að gera bændum grikk. „Athygli verðar breytingar eiga sér nú stað á ósasvæði Miklavatns þar sem ósinn stíflast þegar sjávarstaða er há. Þá hækkar yfirborð Miklavatns um tugi sentimetra þannig að vegurinn að og frá Fljótaárbrúnni verður umflotinn auk þess sem tún og beitilönd fara undir vatn,“ sagði Halldór Gunnar Hálfdansson bóndi á Molastöðum nýverið í færslu á Facebook. Feykir spurði hann nánar út í málið.
Meira

Húnabyggð hlýtur viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar 2026

Sveitarfélagið Húnabyggð hefur hlotið viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar 2026 fyrir að hafa náð markmiði um kynjajafnvægi í efsta stjórnendalagi. Viðurkenningin telst staðfesting á þeirri vegferð sveitarfélagsins að skapa vinnustað þar sem allir hafa jöfn tækifæri til að vaxa, leiða og hafa áhrif. Fjölbreytt stjórnendateymi taka betri ákvarðanir, stuðla að sterkari menningu og betri árangri fyrir sveitarfélagið og samfélagið allt.
Meira

Guðni Th. kynnir nýja bók sína á Héraðsskjalasafni Skagfirðinga

Aufúsugestur mætir á Héraðsskjalasafn Skagfirðinga fimmtudaginn 29. október en það er fyrrverandi forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson. Þar mun hann kynna nýútkomna bók sína, Vald hinna veiku, þar sem hann rekur sögu Landhelgismálsins 1971-1974. Kynningin hefst kl. 17 og eru allir velkomnir meðan húsrúm leyfir.
Meira

Lítið farið fyrir umræðu um gagnaver í Skagafirði

Gagnaver hafa verið mikið í umræðunni og mörg sveitarfélög virðast spennt fyrir uppbyggingu slíkra mannvirkja en starfsemin er gríðarlega orkufrek. Hér á Norðurlandi er gagnaver á Blönduósi og þar er nú mikil uppbygging. Í síðustu viku var sagt frá því að Dalvíkingar, Akureyringar og Þingeyingar væru að plana bygginga gagnavera en ekki var minnst á Skagafjörð í þessu sambandi. Feykir spurði Magnús Barðdal sveitarstjóra Skagafjarðar út í málið.
Meira

Búast má við hörkuleik – Sú ameríska farin

Í kvöld kl: 19.15 mætast Tindastóll og Valur í Síkinu á Sauðárkróki í Bónusdeild kvenna en bæði lið eru jöfn með 4 stig eftir tvo sigra og tvö töp í upphafi móts.
Meira

Bergmál fjallanna - Fyrsta plata Sigurdísar Tryggvadóttur

Tónskáldið, píanóleikarinn og söngkonan Sigurdís Tryggvadóttir frá Ártúnum í Blöndudal snýr á heimaslóðir og heldur útgáfutónleika í tilefni af fyrstu plötu sinni, Bergmál fjallanna. Platan kemur út á Íslandi 31. október og fara tónleikarnir fram í Blönduóskirkju, Hvammstangakirkju og Menningarhúsinu Miðgarði í Varmahlíð. Feykir lagði nokkrar spurningar fyrir tónlistarkonuna.
Meira

Auglýsum eftir skötuframleiðendum - Rannsókn á vegum Háskóla Íslands

Hefur þú innsýn í íslenska skötuhefð og reynslu af því að kæsa skötu? Nú leitum við að framleiðendum um allt land sem verka skötu. Ef þú þekkir vel hvernig kæsing fer fram og/eða hvernig verklagið hefur breyst í tímans rás máttu endilega heyra í okkur! Sömuleiðis ef þú veist hverjir stunda slíka framleiðslu.
Meira

„Ég er óskaplega þakklát fyrir hversu vel fólkið mitt tekur þessari stöðu“

Feykir hefur birt nokkrar fréttir vegna flutnings starfsfólks Ráðhússins á Hvammstanga í Félagsheimilið á Hvammstanga en flutningurinn kom til vegna þess að loftgæði í Ráðhúsinu voru óviðunandi og standið á húsinu mun verra en talið var. Feykir sendi Unni Valborgu Hilmarsdóttur sveitarstjóra nokkrar spurningar þar sem forvitnast var um ástandið.
Meira