Fréttir

Guðni Bent með U15 liði Íslands í Austurríki

U15 landslið karla gerði í gær 3-3 jafntefli við Austurríki í fyrsta leik liðsins á UEFA Development móti sem leikið er í Austurríki þessa dagana. Einn ungur og efnilegur kappi úr unglingastarfinu hjá Tindastóli er með í ferðinni, Guðni Bent Helgason, og hann var í byrjunarliði Íslands.
Meira

Hjördís Halla og Hreindís Katla verðlaunaðar

Uppskeruhátíð Æskulýðsdeildar Skagfirðings var haldin 25. október í Tjarnarbæ þar sem veitt voru verðlaun fyrir tímabilið. Það voru þær Hjördís Halla Þórarinsdóttir og Hreindís Katla Sölvadóttir sem hlutu viðurkenningar að þessu sinni.
Meira

Háskóli Íslands á Hólum er mættur til leiks

Af því tilefni stóðu Háskólinn og Kaupfélag Skagfirðinga fyrir málþingi 19. okt. undir yfirskriftinni: Frá þekkingu til verðmæta: Samstarf háskóla og atvinnulífs um öfluga matvælaframleiðslu. Þar voru mættir stjórnendur frá HÍ, sveitarstjórnarfólk og fulltrúar atvinnulífsins í Skagafirði.
Meira

Stefnir í stærsta Hrekkjavökuball sögunnar á Hofsósi

„Föstudaginn 30. október mun fara fram Halloween ball Friðar 2026 í Höfðaborg á Hofsósi. Þetta er árlegur viðburður sem við erum alltaf með en þessi er sá stærsti sem við höfum haldið,“ segir Konráð Freyr Sigurðsson forstöðumaður Húss frítímans / Félagsmiðstöðvarinnar Friðar á Sauðárkróki þegar Feykir spurði hann í morgun út í Hrekkjavökuballið mikla.
Meira

Maddie Sutton til liðs við Stólastúlkur á ný

Líkt og Feykir sagði frá fyrr í morgun þá hefur Körfuknattleiksdeild Tindastóls samið á ný við Maddie Sutton og mun hún mæta til leiks á næstu vikum. „Maddie hefur látið vel að sér kveða innan vallar sem utan og hefur unnið hug og hjörtu leikmanna, þjálfara og stuðningsfólks. Hún er einstaklega geðþekk og jákvæð og kemur með góða stemningu í hópinn,“ segir í tulkynningu frá kkd. Tindastóls.
Meira

Myndlistasýning barna í Hillebrandtshúsi á Blönduósi

Barnamenningarhátíðin Skúnaskrall er í fullum gangi á Norðurlandi vestra. Hátíðin hófst 21. október og stendur hún til 4. nóvember, undir yfirskriftinni Öll saman. Nú á föstudaginn opnar myndlistasýning í Hillebrandtshúsinu á Blönduósi en þema hennar er Börn.
Meira

Sóknarleikurinn í molum gegn vörn Valsstúlkna

Lið Vals kom í Síkið í gærkvöldi í fimmtu umferð Bónus deildar kvenna. Fyrir leik var vitað að lið Tindastóls yrði án Quinzey Fulmore, stóra bandaríska leikmannsins, sem hafði yfirgefið liðið. Þetta nýttu gestirnir sér heldur betur, lokuðu teignum og þar sem skotnýting utan 3ja stiga línunnar var ekki til að hrópa húrra yfir þá gekk sóknarleikurinn vægast sagt brösuglega hjá Stólastúlkum. Lokatölur 46-72.
Meira

Áhrif flóða í Miklavatni í Fljótum eru margvísleg

Ósinn við Miklavatn í Fljótum er enn að gera bændum grikk. „Athygli verðar breytingar eiga sér nú stað á ósasvæði Miklavatns þar sem ósinn stíflast þegar sjávarstaða er há. Þá hækkar yfirborð Miklavatns um tugi sentimetra þannig að vegurinn að og frá Fljótaárbrúnni verður umflotinn auk þess sem tún og beitilönd fara undir vatn,“ sagði Halldór Gunnar Hálfdansson bóndi á Molastöðum nýverið í færslu á Facebook. Feykir spurði hann nánar út í málið.
Meira

Húnabyggð hlýtur viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar 2026

Sveitarfélagið Húnabyggð hefur hlotið viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar 2026 fyrir að hafa náð markmiði um kynjajafnvægi í efsta stjórnendalagi. Viðurkenningin telst staðfesting á þeirri vegferð sveitarfélagsins að skapa vinnustað þar sem allir hafa jöfn tækifæri til að vaxa, leiða og hafa áhrif. Fjölbreytt stjórnendateymi taka betri ákvarðanir, stuðla að sterkari menningu og betri árangri fyrir sveitarfélagið og samfélagið allt.
Meira

Guðni Th. kynnir nýja bók sína á Héraðsskjalasafni Skagfirðinga

Aufúsugestur mætir á Héraðsskjalasafn Skagfirðinga fimmtudaginn 29. október en það er fyrrverandi forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson. Þar mun hann kynna nýútkomna bók sína, Vald hinna veiku, þar sem hann rekur sögu Landhelgismálsins 1971-1974. Kynningin hefst kl. 17 og eru allir velkomnir meðan húsrúm leyfir.
Meira