Vel sóttur upplýsingafundur vegna móttöku flóttamanna á Hvammstanga
feykir.is
Vestur-Húnavatnssýsla
14.02.2019
kl. 14.28
Sveitarstjórn Húnaþings vestra samþykkti á fundi sínum þann 13. desember sl. að taka á móti 25 flóttamönnum frá Sýrlandi sem dvalist hafa í flóttamannabúðum í Líbanon sl. 4 – 5 ár. Af því tilefni var haldinn upplýsingafundur í Félagsheimilinu á Hvammstanga í gær þar sem um 140 manns mættu. Flóttafólkið er væntanlegt til landsins í apríl/maí.
Meira
