Fréttir

„Það gekk vel en of hægt fyrir óþolinmóða unga dömu“

Júlíana Alda Óskarsdóttir, fædd árið 1988 í Keflavík en uppalin á Sauðárkróki. Júlíana býr ásamt börnunum sínum fjórum, eiginmanni og hundi á Sauðárkróki og vill hvergi annars staðar vera. Hún vinnur sem umsjónarkennari í Árskóla og líkar það mjög vel.
Meira

Stólarnir sendu lið Álftaness í sumarfrí í fjörugum leik

Fresta þurfti leik Tindastóls og Álftaness á föstudaginn þar sem gestir og dómarar komust ekki norður sökum ófærðar. Leikurinn fór því fram seinni partinn í gær og var hinn fjörugasti. Álftesingar mættu sprækir til leiks enda urðu þeir að vinna leikinn til að eiga möguleika á sæti í úrslitakeppninna. Lærisveinar Hjalta Þórs Vilhjálmssonar leiddu lungann úr leiknum en á lokakaflanum reyndust heimamenn svalari, gestirnir fóru að gera slæm mistök og Stólarnir hirtu stigin tvö og halda því í annað sæti deildarinnar. Lokatölur 115-104.
Meira

Fjallabyggð vill að Alþingi tryggi framgang samgönguáætlunar

Sem betur fer hefur veðráttan verið okkur hliðholl í vetur og sjaldan gert stór veður. Engu að síður hefur Siglufjarðarvegur lokast nokkuð oft vegna snjóflóða og snjóflóðahættu. Nú síðustu vikur hefur veðrið þó minnt rækilega á sig og snjóflóð fallið bæði við Strákagöng og í Ólafsjarðarmúla sem hefur jafnvel gert það að verkum að íbúar Siglufjarðar og Ólafsfjarðar hafa verið innilokaðir. Af þessum sökum hefur sveitarstjórn Fjallabyggðar sent frá sér ályktun sem var send þingmönnum Norðausturkjördæmis, þingmönnum Norðvesturkjördæmis, Innviðaráðherra og ráðuneytum oddvita ríkisstjórnarflokka á Alþingi og þeir beðnir að tryggja framgang fyrirliggjandi samgönguáætlunar á Alþingi.
Meira

Stólastúlkur með öruggan sigur á Ármanni

Kvennalið Tindastóls fékk lið Ármanns í heimsókn á laugardagskvöldi í næstsíðustu umferð Bónus deildarinnar. Lið Ármanns var þegar fallið í 1. deild en hefur bitið frá sér í síðustu leikjum. Það hefur einnig verið góður sstígandi í leik Stólastúlkna og þær leiddu frá fyrstu mínútu til leiksloka og má segja að sigurinn hafi aldrei verið í hættu þrátt fyrir sterkt áhlaup gestanna í upphafi síðari hálfleiks. Lokatölur 95-69.
Meira

Hvað gerðist með „sérlausn“ Írlands? | Erna Bjarnadóttir skrifar

Þegar Írland gekk í Evrópubandalagið árið 1973 (forvera Evrópusambandsins, ESB) var sameiginlega sjávarútvegsstefnan enn í mótun. Í aðildarviðræðunum lagði Írland mikla áherslu á stöðu strandbyggða og verndun nálægra fiskimiða. Niðurstaðan varð sú að m.a. var kveðið á um takmarkaðan aðgang annarra aðildarríkja EB að 6 og 12 sjómílna belti við strendur landsins.
Meira

D-listi Sjálfstæðismanna og óháðra í Húnabyggð

Fundur var haldinn 19. mars hjá Sjálfstæðismönnum og óháðum í Húnabyggð. Uppstillinganefnd lagði fram tillögu að framboðslista fyrir sveitarstjórnarkosningarnar sem fara fram 16. maí nk. Tillagan var samþykkt samhljóða.
Meira

Unnið að stefnumótun hreyfingarinnar á Norðurlandi vestra

Vinna við stefnumótun íþróttahreyfingarinnar heldur áfram af krafti og er nú komið að næsta áfanga í ferlinu. Um þessar mundir er fundað með fulltrúum íþróttahéraða, félaga og öðrum áhugasömum á Norðurlandi vestra, þar sem kallað er eftir breiðari þátttöku í mótun framtíðarsýnarinnar. Fundur verður haldinn í Fjölbraustaskóla Norðurlands vestra mánudaginn 23. mars frá klukkan 17:00-19:00. 
Meira

Óveður setur strik í reikninginn – leik Tindastóls frestað til morguns

Leik Tindastóls og Álftaness í Bónus deild karla sem fara átti fram í Síkinu í kvöld  hefur verið frestað vegna óhagstæðra veðurskilyrða. Það hefur ekki farið framhjá neinum að færð og veður hefur verið að stríða landanum síðustu daga, heiðar lokaðar og gular viðvaranir í kortunum dag eftir dag.
Meira

Framboðslisti Framsóknar og annarra framfarasinna í Húnabyggð samþykktur

Í gærkvöldi var samþykktur glæsilegur framboðslisti Framsóknar og annarra framfarasinna í Húnabyggð. Oddviti listans er Grímur Rúnar Lárusson, lögfræðingur og sveitarstjórnarfulltrúi og í öðru sæti er Jenný Lind Gunnarsdóttir, sérkennslustjóri og tengiliður farsældar.
Meira

Ragnar Helgason hefur verið ráðinn í starf verkefnastjóra ferða-, menningar- og viðburðaverkefna

Ragnar Helgason hefur verið ráðinn í starf ferða-, menningar- og viðburðaverkefna. Alls bárust 12 umsóknir um starfið, þar af dró einn umsókn sína til baka.
Meira