Fréttir

Raggi í syngjandi sveiflu gegn Sindra

Tindastólsmenn héldu í suðaustur frá Skagafirði í gær en liðið mætti nýliðum Sindra á Höfn í fyrsta sinn í efstu deild körfunnar í gærkvöldi. Þetta er í fyrsta sinn sem Hornfirðingar eiga lið í efstu deild og þeir sýndu að þeir geta vel bitið frá sér því Stólarnir lentu í basli. Heimamenn leiddu með einu stigi fyrir lokafjórðunginn en Stólarnir voru grimmir á lokakaflanum, skelltu í lás í vörn og fráköstuðu af miklum móð og unnu leikinn 71-78.
Meira

Tengill styrkir stöðu sína á Eyjafjarðarsvæðinu

Tengill hefur keypt Ljósgjafann á Akureyri. Frá þessu segir á Akureyri.net en þar staðfestir Gísli Sigurðsson framkvæmdastjóri Tengils kaupin en tekur fram að viðskiptin hafi verið send til umsagnar hjá Samkeppniseftirlitinu, sem þarf að staðfesta kaupin. Á heimasíðu Ljósgjafana segir að Ljósgjafinn ehf. búi yfir áratuga reynslu í öllu því sem snýr að rafmagni og raftæknibúnaði og þjónusti bæði fyrirtæki og einstaklinga á Eyjafjarðarsvæðinu af metnaði og alúð.
Meira

Ég myndi keppa við Indriða afa í spretthlaupi

Íþróttagarpur í síðasta tölublaði Feykis var Herdís Erla Elvarsdóttir sem verður 14 ára 29. desember n.k. og er búsett á Hvammstanga. Hestamennskugen standa að Herdísi í báðar ættir en foreldrar hennar eru Fanney Dögg Indriðadóttir frá Grafarkoti í vestur Hún. og Elvar Logi Friðriksson frá Varmalæk í Skagafirði. Herdís Erla hefur því alist upp með hestum og er núna farin að láta að sér kveða á keppnisvellinum.
Meira

Starfsmenn LNV leggjast gegn sameiningu lögregluembætta

Samkvæmt frétt á vef RÚV hafa starfsmenn Lögreglustjórans á Norðurlandi vestra skilað inn umsögn um frumvarp til laga um breytingar á lögreglulögum. Þar kemur fram að þeir leggjast gegn þeim hugmyndum um sameiningu og skipulag lögregluembætta sem birtast í frumvarpsdrögum. Það er mat starfsmanna að ekki hafi verið sýnt fram á nauðsyn þess að fækka lögregluembættum úr níu í þrjú eða að fyrirhuguð sameining muni bæta löggæslu á Norðurlandi vestra.
Meira

Stórskemmtileg sýning í Laugardalshöllinni

Stórsýningin Íslenskur landbúnaður 2026 var haldin í Laugardalshöll-inni í Reykjavík 9.-11. október 2026. Feykir komst ekki hjá því að uppgötva að Króksarinn Benedikt Rúnar Egilsson (sem flestir þekkja sem Benna í Bílabúðinni þó hann vinni þar ekki lengur) væri einn af þeim aðilum sem ætlaði að kynna vörur og þjónustu á sýningunni. Á leiðinni suður bárust honum því skilaboð þar sem hann var spurður hvort hann gæti tekið að sér að smella myndum af sýningunni fyrir Feyki og ekki síst ef hann rækist á kunnugleg andlit. Það reyndist sjálfsagt mál og þegar myndirnar bárust í tugatali þá varð ekki hjá því komist að spyrja hann aðeins út í bissnesinn og sýninguna.
Meira

Tölum saman | Leiðari 40. tölublaðs Feykis

Leiðarinn er skrifaður á sunnudagskvöldi og suðvestanvindurinn gnauðar á herbergisglugganum. Það er búið að vera hvasst í allan dag og verður það væntanlega eitthvað áfram. Og mikið lifandi skelfing er rokið nú leiðinlegt.
Meira

Margt smátt | Sigurður Líndal Þórisson skrifar

Margt smátt gerir eitt stórt. Þetta lærðum við flest þegar við eignuðumst fyrsta sparibaukinn. Ríkisstjórnin hefur lært þessi einföldu sannindi líka, og beitir þeim af hörku gegn heimilum landsins.Hækkanirnar og skerðingarnar sem skella á fólki árið 2027 virðast smávægilegar hver fyrir sig. Í frumvarpinu fer kílómetragjaldið úr 6,95 krónum í 8,05 á hvern ekinn kílómetra, krónutölugjöldin hækka um 5,2% og barnabætur standa í stað þriðja árið í röð. Skattleysismörkin fá enga raunhækkun og vaxtabæturnar falla niður. Króna hér, nokkur þúsund þar. Klink og smáræði. En þetta tínist til.
Meira

Enn er barist fyrir lauginni

Feykir sagði frá því að Skagfirsku sundmeyjarnar sem stóðu fyrir undirskriftum til að mótmæla lokun endurhæfingarlaugarinnar, hafi sent frá sér listann sem taldi 1232 manns, til allra helstu ráðamanna með kröfu um að lokunin verði dregin til baka.
Meira

Umferðarsöryggisáætlun í endurskoðun

Húnabyggð vinnur nú að endurskoðun umferðaröryggisáætlunar fyrir sveitarfélagið. Markmið áætlunarinnar er að móta aðgerðaráætlun sem stuðlar að auknu öryggi, fækkun slysa og betri lífsgæðum fyrir íbúa og aðra vegfarendur.
Meira

Vilhelm Jensen hefur hafið störf hjá SSNV

Vilhelm Ívarsson Jensen hefur verið ráðinn verkefnastjóri fjárfestinga og atvinnuþróunar hjá Samtökum sveitarfélaga á Norðurlandi vestra og efur hann þegar tekið til starfa. Hann hefur aðsetur á starfsstöð SSNV á Sauðárkróki og með ráðningu hans eru starfsmenn samtakanna nú sjö.
Meira