Fréttir

Sérstakur húsnæðisstuðningur vegna námsmanna

Húnaþing vestra minnir á á vefsíðu sinni: hunathing.is, sérstakan húsnæðisstuðning sem ætlaður er að auðvelda námsmönnum á framhaldsskólastigi og fjölskyldum þeirra að mæta húsnæðiskostnaði.
Meira

Af hverju verkalýðshreyfingin á að styðja ESB-viðræður | Gylfi Þór Gíslason skrifar

Verkalýðshreyfingin á að styðja aðildarviðræður Íslands við Evrópusambandið – ekki vegna þess að niðurstaðan sé fyrirfram ákveðin, heldur vegna þess að íslenskt launafólk á rétt á því að sjá hvaða möguleikar felast í aðild og semja um hagsmuni sína við borðið. Verkalýðshreyfingin hefur aldrei verið hrædd við breytingar. Hún hefur hins vegar alltaf spurt sömu grundvallarspurningarinnar: Hvað þýðir þetta fyrir kjör fólksins sem við erum að verja? Þess vegna eigum við að styðja að nýjar aðildarviðræður við Evrópusambandið hefjist. Við eigum að vera við borðið, Ísland er þegar hluti af innri markaði Evrópu í gegnum EES-samninginn.
Meira

Sigfús Ingi ráðinn rekstrarstjóri Háskóla Íslands á Hólum

Sigfús Ingi Sigfússon, fyrrverandi sveitarstjóri Skagafjarðar, hefur verið ráðinn rekstrarstjóri Háskóla Íslands á Hólum og hóf hann störf 17. ágúst sl. Í starfi rekstrarstjóra mun Sigfús Ingi bera ábyrgð á rekstri og stoðþjónustu Háskóla Íslands á Hólum og taka þátt í áframhaldandi uppbyggingu starfseminnar í samstarfi við starfsfólk skólans og Háskóla Íslands.
Meira

Íslenskir peningar með skilyrðum frá Brussel? | Erna Bjarnadóttir skrifar

Ísland er eitt ríkasta land Evrópu. Samkvæmt Eurostat var landsframleiðsla á mann hér á landi árið 2025, leiðrétt fyrir verðlagi, 28% yfir meðaltali ESB. Alþingi fer með skattlagningar- og fjárveitingarvaldið en ríkisstjórnin leggur fram frumvarp til fjárlaga. Vilji Alþingi verja meiri fjármunum til atvinnuuppbyggingar, innviða og byggðaþróunar um land allt hefur það fulla heimild til þess. Til þess þarf hvorki ESB-aðild né leyfi frá Brussel.
Meira

Flösku- og dósasöfnun á Króknum í dag

Þeir sem hafa safnað flöskum og dósum i sumar, og vilja gjarnan losna við herlegheitin fyrr en síðar, geta nú tekið gleði sína því seinni partinn í dag munu ungir iðkendur frá knattspyrnudeild Tindastóls ganga hús úr húsi til að safna flöskum og dósum.
Meira

Kjarnorkukonur á dagskrá á Vatnsdæluhátíð

Nú á föstudaginn verður Vatnsdæluhátíð í Heimilisiðnaðarsafninu á Blönduósi og hefst dagskráin kl. 16:00. Að þessu sinni verða Bríet Bjarnhéðinsdóttir og aðrar merkiskonur úr Húnavatnssýslum heiðraðar. „Við höfum haldið Vatnsdæluhátíð undanfarin þrjú ár og að þessu sinni var ákveðið að heiðra sérstaklega minningu Bríetar Bjarnhéðinsdóttur sem fæddist á Haukagili í Vatnsdal. Stytta af henni, sem hefur verið frammi í Vatnsdal, var flutt niður á Blönduós og tekin í gegn og setja á hana upp við Heimilisiðnaðarsafnið í tilefni dagsins,“ sagði Pétur Bergþór Arason sveitarstjóri í Húnabyggð þegar Feykir hafði samband.
Meira

Vinnan, Sturlunga, goðafræði og Gerpla | Málþing í Kakalaskála

Næstkomandi laugadag, 29. ágúst, verður hið árlega málþing í Kakalaskála haldið. Feykir hafði samband við Guðrúnu Ingólfsdóttur sem hefur veg og vanda að skipulagningu málþingsins og bað hana segja frá sögu þessa ágæta viðburðar. Gefum Guðrúnu orðið:
Meira

Vel heppnaður fræðsludagur í Miðgarði

Miðvikudaginn 19. ágúst kom starfsfólk leikskóla, grunnskóla og tónlistarskóla í Skagafirði saman á árlegum fræðsludegi sem haldinn var í Miðgarði. Að þessu sinni var um sérstakan áfanga að ræða, þar sem fræðsludagurinn var haldinn í 15. sinn. Markmið dagsins var að efla fagþekkingu, styrkja samstarf og skapa góðan grunn fyrir komandi skólaár. Dagskráin var fjölbreytt og tók á mikilvægum málefnum sem tengjast velferð, námi og starfsþróun. Skagafjordur.is segir frá:
Meira

Ég er þetta fífl | Högni Elfar Gylfason skrifar

Næstu helgi göngum við til mikilvægustu kosninga frá því að Ísland öðlaðist fullveldi. Við munum greiða atkvæði um hvort taka skuli upp viðræður um aðild Íslands að Evrópusambandinu eða með öðrum orðum hvort við sækja eigi um inngöngu í ESB.
Meira

Norðurlandameistarar í kata frá Íslandi | Annika Líf Maríudóttir Noack skrifar

Freyr Hugi Herbergsson og Jóhanna María Grétarsdóttir Noack úr Júdódeild Tindastóls tóku nýverið þátt í Nordic Kata Open Tournament 2026 í Finnlandi. Þetta var í annað sinn sem þau kepptu saman á mótinu, en árið 2025 fóru þau til Svíþjóðar þar sem þau unnu sinn fyrsta kata-keppnisflokk.
Meira