Fréttir

Aldarafmæli Svanhildar frá Hofsósi

Svanhildur Guðjónsdóttir frá Hofsósi eða Svana eins og hún er alltaf kölluð, hélt upp á 100 ára afmæli sitt á dvalarheimilinu á Sauðárkróki 12. febrúar sl. umkringd fjölskyldu og vinum.
Meira

Silla Hermanns er maður ársins í Austur-Húnavatnssýslu

Lesendur Húnahornsins hafa valið Sigurlaugu Þóru Hermannsdóttur á Blönduósi sem mann ársins í Austur-Húnavatnssýslu árið 2025 en frá þessu segir í frétt á Húna.is í morgun. „Silla Hermanns, eins og hún er oftast kölluð, hefur í mörg ár verið ein af þeim manneskjum sem gera samfélagið í Austur-Húnavatnssýslu betra. Hún hefur verið áberandi í Hollvinasamtökum Heilbrigðisstofnunarinnar á Blönduósi, þar sem hún gegnir formennsku og tekið þátt í fjölmörgum verkefnum sem styrkja þjónustu, aðstöðu og líðan fólks á svæðinu,“ segir í fréttinni.
Meira

„Alltaf vonbrigði að tapa þegar maður er svona nálægt markmiðinu“

Líkt og greint er frá hér á íþróttasíðu Feykis þá tókst liði Tindastóls ekki að sigra sterkt lið Grindavíkur í undanúrslitum VÍS bikarsins. Það var baráttujaxlinn, hin bandaríska Maddie Sutton, sem fór fyrir liði Tindastóls og gerði flest stig liðsins í leiknum.
Meira

Segja breytingar á búvörulögum vinna gegn hagræðingu í íslenskum landbúnaði

Breytingar atvinnuvegaráðherra á búvörulögum eru til umfjöllunar á Alþingi og var fjallað um þau á fundi byggðarráðs Skagafjarðar í gær. Telur byggðarráð að nái frumvarpið fram að ganga muni það hafa verulega neikvæð áhrif á starfsumhverfi íslensks landbúnaðar og gangi í raun „...þvert gegn yfirlýstri stefnu ríkisstjórnar Íslands um að efla verðmætasköpun í íslenskri matvælaframleiðslu og tryggja sjálfbæra innlenda framleiðslu.“
Meira

Opið fyrir styrki til atvinnumála kvenna

Vinnumálastofnun og Félags- og húsnæðismálaráðuneytið hafa auglýst styrki til atvinnumála kvenna fyrir árið 2026 lausa til umsóknar. Markmið styrkjanna er að styðja við nýsköpun, atvinnusköpun og uppbyggingu fyrirtækja í meirihlutaeigu kvenna. Heildarfjárhæð styrkja að þessu sinni nemur 35 milljónum króna og er hámarksstyrkur fyrir hvert verkefni allt að 4 milljónum króna.
Meira

Samvinna, fagmennska og öryggi

Í gær hélt Lögreglan á Norðurlandi vestra 112 daginn hátíðlegan ásamt frábærum viðbragðsaðilum á Hvammstanga, Blönduósi, Sauðárkróki og Skagaströnd. Gestir fengu að skoða tæki og búnað viðbragðsaðila, fræðast um mikilvægt starf þeirra og upplifa sannkallaðan hópakstur sem vakti mikla athygli.
Meira

Stólarnir fá Lettana í Riga Zelli í 16 liða úrslitum ENBL deildarinnar

Síðustu leikirnir í riðlakeppni ENBL-deildarinnar í körfuknattleik voru leiknir í gærkvöldi. Eftir að Tindastólsmenn lögðu Brussels Basketball í fyrrakvöld var ljóst að stolt Skagafjarðar hafði tryggt sér heimaleikjarétt í 16 liða úrslitum deildarinnar, en lið Tindastóls hafnaði í sjötta sæti. Ljóst er að riðlakeppni lokinni að Stólarnir fá lið Riga Zelli frá Lettlandi í heimsókn í Síkið og verður leikurinn að líkindum þann 10. mars.
Meira

Háskólinn á Hólum – Öflugur sérhæfður háskóli á landsbyggðinni | Hólmfríður Sveinsdóttir skrifar

Á síðastliðnum þremur árum hafa Háskóli Íslands og Háskólinn á Hólum unnið að því að stofna Háskólasamstæðu með það að markmiði að bæta samkeppnishæfni háskólanna ásamt því að auka gæði náms, rannsókna, stoðþjónustu og auka tengsl við atvinnulíf og samfélag um land allt. Sértæk markmið með stofnun Háskólasamstæðunnar eru að styrkja Háskóla Íslands sem leiðandi háskóla í íslensku samfélagi og Háskólann á Hólum sem sérhæfðan háskóla á landsbyggðinni. Jafnframt verður áhersla lögð á að samstæðan verði eftirsóknarverð fyrir fleiri háskóla og rannsóknastofnanir.
Meira

Mikilvægur sigur Stólastúlkna í Þorlákshöfn

Stólastúlkur fóru suður yfir heiðar í gær og léku við lið Hamars/Þórs í Icelandic Glacial höllinni í Þorlákshöfn. Bæði lið þráðu sigur; heimakonur til að gefa sér raunhæfan möguleika á að halda sæti sínu í deildinni en lið Tindastóls hefði farið langt með að tryggja sæti sitt í efstu deild með sigri. Og gestirnir gerðu það einmitt, sýndu mikinn karakter og sterkur fjórði leikhluti tryggði liðinu fyrsta sigurinn á útivelli í vetur. Lokatölur 79-87.
Meira

Vera og Feykir komu, sáu og sigruðu

Þá er Meistaradeild KS í hestaíþróttum farin af stað þennan veturinn en í gærkvöldi var keppt í fjórgangi í Reiðhöllinni Svaðastöðum. Það voru þau Vera Schneiderchen og Feykir frá Selfossi sem reyndust hlutskörpust með einkunnina 7,27. Í öðru sæti voru Þórarinn Eymundsson og Kolgrímur frá Breiðholti og í þriðja Herdís Björg Jóhannsdóttir og Svörður frá Vöðlum, einnig með 7,20.
Meira