Segja breytingar á búvörulögum vinna gegn hagræðingu í íslenskum landbúnaði
feykir.is
Skagafjörður, Lokað efni
12.02.2026
kl. 15.15
Breytingar atvinnuvegaráðherra á búvörulögum eru til umfjöllunar á Alþingi og var fjallað um þau á fundi byggðarráðs Skagafjarðar í gær. Telur byggðarráð að nái frumvarpið fram að ganga muni það hafa verulega neikvæð áhrif á starfsumhverfi íslensks landbúnaðar og gangi í raun „...þvert gegn yfirlýstri stefnu ríkisstjórnar Íslands um að efla verðmætasköpun í íslenskri matvælaframleiðslu og tryggja sjálfbæra innlenda framleiðslu.“
Meira
