Fréttir

„Þeir hefðu átt að dæma þetta betur“

Feykir heyrði hljóðið í Arnari Guðjóns þjálfara Tindastóls í körfunni og ekki annað að heyra en það væri enn nokkuð þungt í okkar manni eftir tapleikinn gegn Álftanesi. Aðspurður hvort hann væri búinn að horfa á leikinn aftur sagðist hann ekki búinn að horfa á hann allan en sagðist svekktur með úrslitin. „Mér fannst við spila vel á köflum en ekki nægjanlega vel og sóknarleikurinn var ekki nógu góður.“
Meira

Tröllabrúðusmiðja á bókasafninu á Króknum

Langar þig að búa til eignn tröllabrúðu? Næstkomandi mánudag verður Tröllabrúðusmiðja á Héraðsbókasafninu á Sauðárkróki en það er brúðulistakonan brjáðsnalla, Greta Clough frá Handbendi á Hvammstanga, sem stýrir smiðjunni sem er partur af dagskrá barnamenningarhátíðarinnar Skúnaskralls. Þegar hafa Trollabrúðusmiðjur verið haldnar á Hvammstanga og Skagaströnd.
Meira

Verkefnastjóri byggðaþróunar og orkumála

Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra (SSNV) og Orkusamfélag Steingerðar auglýsa eftir öflugum verkefnastjóra í fjölbreytt og spennandi starf. Um er að ræða 100% starf sem skiptist til helminga milli byggðaþróunarverkefna SSNV og Evrópuverkefnisins DEPLOY-PED, sem Orkusamfélag Steingerðar tekur þátt í.
Meira

Álftnesingar fyrstir til að vinna Stólana í haust í hörkuleik

Liðin sem að flestum eru talin sterkust í Bónus deild karla í körfunni mættust í Síkinu í gær og leikurinn stóð heldur betur undir væntingum, bæði lið sýndu góðan leik og leikurinn æsispennandi fram á síðustu framlengdu sekúndu. Því miður fyrir okkur stuðningsmenn Stólanna var það lið Álftaness sem hafði betur en lokatölur voru 105-108 að lokinni framlengingu.
Meira

Hrekkjavakan er á morgun!

Það eru margir – bæði ungir og aldnir – farnir að láta sig hlakka til Hrekkjavökunnar sem er einmitt núna á laugardaginn. Hrekkjavakan er árlegur viðburður sem ávallt ber upp þann 31. október. Vakan á rætur að rekja til fornrar keltneskar hátíðar sem kallaðist Samhain en nú seinni árin tengjum við þennan dag kannski frekar við bandarískar hrollvekjur og eitt og annað tengt þeim. Ekki er langt síðan að Íslendingar vöktu upp Hrekkjavökuna og Feykir afréð að spyrja Hrafnhildi Viðars út í málið en hún er ein af þeim sem störtuðu Grikk og gott á Króknum. Við hefjum leik á að spyrja hvað standi til...
Meira

Ók bílnum á allt að 193 km hraða þegar slysið varð

Héraðsdómur Norðurlands vestra hefur dæmt ungan mann í fimm mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir glæfraakstur á Siglufjarðarvegi í Skagafirði. Í frétt á mbl.is segir að maðurinn hafi ekið á allt að 193 kílómetra hraða á klukkustund áður en hann missti stjórn á bifreiðinni og hún valt út af veginum. Farþegi hlaut alvarlegan heilaskaða í slysinu.
Meira

Donni tekur á ný við kvennaliði Tindastóls!

Í gær kom tilkynning frá knattspyrnudeild Tindastóls þar sem tilkynnt var að Halldór Jón Sigurðsson, betur þekktur sem Donni, hefur verið ráðinn aðalþjálfari hjá meistarflokki kvenna og hefur undirritað þriggja ára samning við félagið. Donni þekkir að sjálfsögðu fótboltann á Króknum út og inn en hann hefur áður starfað hjá Tindastóli, þar sem hann var aðalþjálfari meistaraflokks kvenna árin 2022–2025 auk þess að hafa þjálfað karlaliðið, ýmist sem aðal- eða aðstoðarþjálfari.
Meira

Guðni Bent með U15 liði Íslands í Austurríki

U15 landslið karla gerði í gær 3-3 jafntefli við Austurríki í fyrsta leik liðsins á UEFA Development móti sem leikið er í Austurríki þessa dagana. Einn ungur og efnilegur kappi úr unglingastarfinu hjá Tindastóli er með í ferðinni, Guðni Bent Helgason, og hann var í byrjunarliði Íslands.
Meira

Hjördís Halla og Hreindís Katla verðlaunaðar

Uppskeruhátíð Æskulýðsdeildar Skagfirðings var haldin 25. október í Tjarnarbæ þar sem veitt voru verðlaun fyrir tímabilið. Það voru þær Hjördís Halla Þórarinsdóttir og Hreindís Katla Sölvadóttir sem hlutu viðurkenningar að þessu sinni.
Meira

Háskóli Íslands á Hólum er mættur til leiks

Af því tilefni stóðu Háskólinn og Kaupfélag Skagfirðinga fyrir málþingi 19. okt. undir yfirskriftinni: Frá þekkingu til verðmæta: Samstarf háskóla og atvinnulífs um öfluga matvælaframleiðslu. Þar voru mættir stjórnendur frá HÍ, sveitarstjórnarfólk og fulltrúar atvinnulífsins í Skagafirði.
Meira