Haustþing SSNV: Innviðir Norðurlands vestra mega ekki vera afgangsstærð
feykir.is
Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla, Lokað efni
19.10.2026
kl. 11.45
Haustþing Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra, sem haldið var á Hótel Laugarbakka í Húnaþingi vestra 1. október sl., samþykkti ályktun um samgöngu- og innviðamál. Þingið fagnar nýrri samgönguáætlun en bendir á að fjármagn til vega, fjarskipta, raforkuflutninga og hafna í landshlutanum hafi lengi verið langt undir þörf. Þingið krefst þess að fjármögnun innviða á Norðurlandi vestra endurspegli raunverulega þörf landshlutans.
Meira
