Fréttir

Eldur í Hún | Miðvikudagur

Nýr dag á Eldinum. Gærdagurinn gekk vel. Sérstaklega var góð stemning og þátttaka í pílumótinu. Fólki á svæðinu er að fjölga og er búist við rúmlega 1000 manns um helgina. Miðasala á böllin á föstudag og laugardag er lífleg að sögn Birgis Þórs, eins af aðstandendum hátíðarinnar.
Meira

Úlfur Úlfur og fleira góðgæti á Unglingalandsmóti

Dagskrá Unglingalandsmóts UMFÍ á Sauðárkróki er fjölbreytt eins og alltaf. Alla helgina verður keppt í fjölmörgum íþróttagreinum ásamt því að þátttakendur fá tækifæri til að prófa og kynnast nýjum greinum. Auk þess er spennandi skemmti- og afþreyingardagskrá á hverjum degi. Á kvöldin verða tónleikar og fjör fyrir alla fjölskylduna.
Meira

Karlakórinn Heimir ætlar að bræða liðið á Bræðslunni

Heimismenn eru í óða önn að búa sig undir að bruna alla leið á Borgarfjörð eystri en þar ætla þeir að taka þátt í hinni árlegu hátíð Bræðslunni. Áskell Heiðar Ásgeirsson, Borgfirðingurinn marghami sem býr á Sauðárkróki er einn af aðal skipuleggjendum hátíðarinnar. Tónleikarnir bera yfirskriftina „Fyrir afa.”
Meira

Eldur í Hún er eins og íslenskur fjárhundur

Feykir lagði nokkrar samvisku spurningar fyrir nokkra vestur-Húnvetninga vegna Elds í Hún. Hér svarar Linda Sóley Guðmundsdóttir:
Meira

Ferðasaga úr badmintoninu: Mikil stemning á Englandi

Dagana 16.-19. júlí var blaðamaður Feykis, undirrituð, Emma Katrín, stödd í Birmingham á Englandi. Þar fór fram alþjóðlega unglingamótið All England Junior Championship í badminton. Nú er ég komin heim og mætt aftur til Feykis og því er um að gera að skrifa ferðasögu. Ísland sendi sex keppendur til leiks og með hópnum ferðuðust tveir foreldrar, en þetta er sami hópur og mun keppa fyrir hönd Íslands á Evrópumeistaramóti undir 19 ára núna í ágúst.
Meira

Eldurinn fór vel af stað

Gleðihátíðin Eldur í Hún hófst í gær, mánudag og rann ljúflega af stað að sögn Patreks Óla viðburðarstjóra. „Allt gekk eins og í sögu og fór vel af stað, yfir 30 manns á folf námskeiði og um 25 á folf móti seinna um kvöldið.” Segir Patrekur. Hátíðin heldur að sjálfsögðu áfram í dag og er hún efirfarandi með yfirskriftinni: Hver sagði að sund, rave og pílukast færu ekki saman?
Meira

Öflugar konur til starfa hjá Skagafirði

Skagafjörður hefur lokið ráðningum í tvær mikilvægar leiðtogastöður á fjölskyldusviði sveitarfélagsins. Álfhildur Leifsdóttir hefur verið ráðin leiðtogi fræðslumála og Auður Inga Ingimarsdóttir hefur verið ráðin leiðtogi málefna fatlaðs fólks og eldra fólks.
Meira

Sex efstu fengu verðlaun | Frá Golfklúbbi Skagafjarðar

Opna Fisk mótið fór fram í rjómablíðu á Hlíðarendavelli á föstudag og laugardag. Kept var í betri bolta á föstudaginn og Greensome á laugardeginum. Uppselt var í mótið og voru 56 keppendur, eða 28 lið mætt til leiks.
Meira

Húnavakan 2026 er að baki og tókst vel

Ein af mörgum bæjarhátíðum landsins er sú rótgróna Húnavaka sem haldin er í Húnabyggð í Austur-Húnavatnssýslu. Hátíðinni þetta árið er nýlokið en hún stóð yfir dagana 15 – 19, júlí. Metþátttaka var þetta árið og er ekki ólíklegt að íbúafjöldi Húnabyggðar hafi rúmlega tvöfaldast hátíðardagana. Húnavaka var fyrst haldin 1948 og hefur verið haldin árlega síðan með örfáum undantekningum.
Meira

Allir sveitavegir liggja til Hofsóss

Sveitavegir er tónlistarhátíð sem fer fram á Hofsósi laugardaginn 25. júlí næstkomandi en þar mun tónlistarfólk héðan og þaðan koma saman og flytja sveitatónlist. Héðan og þaðan stendur þá fyrir tónlistarfólk úr Skagafirði og að sunnan. Fyrirmyndir í tónlistinni eru sóttar vestur um haf en með flæðir einnig þjóðlagapopp og auðvitað íslensk sveitatónlist í bland.
Meira