Fréttir

Vonskuveðri spáð í Skagafirði í dag

Skörp haustlægð gengur nú yfir landið með tilheyrandi roki, rigningu og vatnavöxtum. Veðurstofan hefur gefið út gular veðurviðvaranir fyrir Suðurland, hálendið og Vestfirði og við hér fyrir norðan prísum okkur því sæl með að veðrið nær ekki til okkar. Eða hvað? Miðað við veðurspá þá er hvergi á landinu spáð meiri vindi en í Skagafirði því um hádegi er reiknað með austan 22 m/sek. og má því reikna með bálhvössu í austanverðum Skagafirði.
Meira

Það verður hestamannastemning á Svaðastöðum

Þá styttist í hina árlegu Laufskálaréttarsýningu í reiðhöllinni Svaðastöðum föstudagskvöldið 25.sept. og hefst veislan kl. 20:00. Skagfirsk skemmtun þar sem glæsilegir hestar, gleði, söngur og glaðlyndir gestir verða í fyrirrúmi! Nokkur dæmi um atriði sem verður boðið upp á eru:
Meira

Stólarnir með öruggan sigur í Lettlandi

Tindastólsmenn fóru vel af stað í ENBL-deildinni í gærkvöldi þegar þeir unnu sannfærandi sigur á fyrrum félögum Davis Geks í Liepaja í Lettlandi. Stólarnir áttu góðan annan leikhluta og bjuggu þá til gott forskot sem heimamönnum gekk illa að vinna á. Staðan í hálfleik var 37-50 en lokatölur voru 69-92.
Meira

Framkvæmdir við Vatnsdalsveg og Skagaveg ganga vel

Meira

Laufskálaréttarhelgin er framundan

Þá er gleðihelgin mikla að detta á. Að venju hefst partíið á föstudagskvöldinu með sýningu í reiðhöllinni Svaðastöðum þar sem menn og hestar sýna sig og sjá aðra. Réttin sjálf er svo laugardaginn 26. sept. en þangað hefur komið hátt í 3.000 manns síðustu ár til að sjá falleg hross, kynnast þessari skemmtilegu menningu og hitta mann og annan og hafa gaman saman.
Meira

Lokað fyrir umferð um þjóðveg 1 í Langadal

Þjóðvegur 1 er lokaður í Langadal, við bæinn Geitaskarð sem er nokkuð sunnan við Blönduós, vegna umferðaróhapps. Þetta kemur fram á vef Vegagerðarinnar, umferdin.is.
Meira

Tindastólsmenn hefja leik í ENBL-deildinni klukkan fjögur í dag

„Við erum í Liepaja i Lettlandi. Veðrið er bara voða fint; sól, smá vindur og hiti eitthvað um 15 gráður,“ sagði Pétur Rúnar Birgisson fyrirliði Tindastóls þegar Feykir spurði hann hvar Stólarnir væru staddir í heiminum nú í morgun og hvernig veðrið væri. Stólarnir hefja leik í ENBL-deildinni kl. 16:00 í dag og verður hægt að fylgjast með leiknum í beinu streymi á TindastóllTV.
Meira

Ánægja með endurgerða skólalóð á Hvammstanga

Framkvæmdir hófust við endurgerð skólalóðarinnar á Hvammstanga snemma í júni en verklok voru áætluð um miðjan ágúst. Verktaki var Vogaklettur og segir frá verkefninu á Facebook-síðu þeirra. Feykir spurði Unni Valborgu Hilmarsdóttur sveitarstjóri í Húnaþingi vestra hvort ánægja ríkti með lóðina. „Afskaplega mikil ánægja og framkvæmdir tókust mjög vel,“ svaraði hún.
Meira

Fengu um 70 tonn af þorski á einum og hálfum sólarhring

Það er fiskur í sjónum. Einn af togurum FISK Seafood, Málmey SK 1, kom til löndunar á Sauðárkróki í morgun með 114 tonna afla. Hann samanstóð að mestu af þorski, eða um 97 tonn, en næstmest var af ýsu, um 9 tonn.
Meira

Lilla og Götler valin bestu leikmenn meistaraflokka Tindastóls

Þá er knattspyrnuvertíðinni lokið þetta sumarið og knattspyrnumenn sleikja nú sárin og setja sér ný markmið fyrir næsta ár. Lokahóf knattspyrnudeildar Tindastóls fór fram fyrr í september og þar voru þeim veitt verðlaun sem þóttu skara fram úr. Í kvennaliðinu var Sigríður Hrafnhildur (Lilla) Stefánsdóttir valin besti leikmaðurinn en Matheus Gotler var valinn bestur í karlaliðinu.
Meira