Fréttir

Gömlu dansarnir í félagsheimilinu á Blönduósi föstudagskvöldið 6. mars

Föstudaginn 6. mars, það er á morgun, verða þeir dansar sem í daglegu tali eru nefndir „gömlu dansarnir“ dansaðir í félagsheimilinu á Blöndusósi frá kl. 20-22. Þetta eru dansar eins og t.d. vals, ræl, polka, vínarkruss, masúrka og skottís og verða þeir félagar Benni og Skarphéðinn ásamt hljómsveit sem halda uppi fjörinu á staðnum.
Meira

Kjördagur fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar fer fram 16. maí nk.

Á heimasíðu Skagafjarðar er tilkynning þess efnis að sveitarstjórnarkosningarnar fari fram laugardaginn 16. maí nk. Einnig er vakin athygli á eftirfarandi dagsetningum er varða skilafrest framboða sem er kl. 12:00 þann 10. apríl og að utankjörfundaratkvæðagreiðsla hefjist þann 17. apríl. Þá hefur yfirkjörstjórn Skagafjarðar opnað fyrir rafræna meðmælendasöfnun fyrir framboð til sveitarstjórnar á vef Ísland.is. 
Meira

Tap í Blue-höllinni í gær

Það leið ekki langur tími á milli leikja hjá Stólastúlkum þessa vikuna og voru þær eflaust ennþá í sigurvímu eftir frábæran sigur á Stjörnunni síðastliðinn sunnudag. Í gær heimsóttu þær Keflavík í Blue-höllinni og má búast við að heimferðin hafi verið frekar döpur því niðurstaða leiksins var tap, lokatölur 77-67.
Meira

Glaðheimar stækka og fullbókað fyrstu þrjá mánuði ársins

Ferðaþjónustufyrirtækið Glaðheimar á Blönduósi eru í stöðugum vexti og gekk rekstur þess vel á síðasta ári, að sögn Lárusar B. Jónssonar framkvæmdastjóra. Í dag er gistirými Glaðheima á svæð-inu fyrir um 150 manns, þar af eru um 30 sumarhús í mismunandi stærðum og gistihús með rými fyrir um 16 manns. Í samtali við Húnahornið segir Lárus að bókanir fyrir árið 2026 hafi verið miklar og að fullbókað sé fyrstu þrjá mánuði ársins. Í ljósi þess hafi eigendur Glaðheima ákveðið að auka verulega við gistiplássið, eða um það bil fyrir 50 manns til viðbótar.
Meira

Tillaga að breyttu deiliskipulagi: Sauðárkrókshöfn - Háeyri 6 og 8

Sveitarstjórn Skagafjarðar samþykkti á 46. fundi sínum þann 25. febrúar 2026 að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi fyrir hafnarsvæðið á Sauðárkróki vegna lóðanna Háeyri 6 og 8 í samræmi við 41. og 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Meira

Unnið að mokstri í Hrútafirði og á Holtavörðuheiði

Það er strekkingu víða á Norðurlandi vestra og þó einna helst í Skagafirði en vindur er allnokkur við Tröllaskaga og nágrenni. Vindur er að suðvestan, hiti um frostmark og það éljar. En eins og allir vita þá styttir öll él upp um síðir og spá Veðurstofunnar gerir ráð fyrir að það birti til upp úr hádegi og éljabakkar hverfa á braut.
Meira

„Þetta er árásarstríð gegn smáríki“ | Hjörtur J. Guðmundsson skrifar

„Við stöndum frammi fyrir algerri eyðileggingu og gríðarlegri reiði og gremju í garð ríkisstjórnar Evrópusambandsins [framkvæmdastjórnarinnar] vegna þess að þetta eru fullkomin svik,“ sagði Brendan Byrne, framkvæmdastjóri Samtaka írskra fiskvinnslufyrirtækja og útflytjenda, í samtali við írsku útvarpsstöðina Highland Radio í desember.
Meira

Skagafjörður óskar eftir tilboðum í framkvæmdir við Staðarbjargavík

Skagafjörður óskar eftir tilboðum í verkið Staðarbjargavík Hofsósi – Tröppur og pallar. Verkið felst í uppbyggingu útsýnissvæðis við Staðarbjargavík. Um er að ræða jarðvinnu, smíði stoðveggja úr steypu, smíði handriða, útsýnispalla, bekkja og stiga úr völsuðu galvanhúðuðu stáli ásamt göngustígagerð. Verkinu í heild skal að fullu lokið 31. ágúst 2026.
Meira

Málþing um stöðu og framtíð smáframleiðenda

Málþing um stöðu og framtíð smáframleiðenda verður laugardaginn 7. mars nk. í Menningarhúsinu Miðgarði í Skagafirði og af þessu tilefni tók Feykir púlsinn á Guðlaugi Skúlasyni verkefnastjóra hjá SSNV sem stendur fyrir málþinginu í félagi við Farskólann – miðstöð símenntunar á Norðurlandi vestra. „Við tókum höndum saman og erum að búa til vettvang til að ræða stöðu og framtíð smáframleiðenda á Íslandi,“ segir Gulli aðspurður um hverjir standi að málþinginu.
Meira

Tvær umsóknir bárust í Atvinnu- og nýsköpunarsjóð Húnaþings vestra

Á vef Húnaþings segir að á 1268. fundi byggðarráðs sem haldinn var 26. janúar sl. var úthlutað úr Atvinnu- og nýsköpunarsjóði Húnaþings vestra. Alls bárust tvær umsóknir og sótt var um alls kr. 3.000.000. Til úthlunar voru kr. 2.500.000.
Meira