Fréttir

Stólarnir sterkir á heimavelli

Í rigningunni í gær, fimmtudaginn 25. júní mættust Tindastóls og Sindra úr Höfn í Hornafirði í tíundu umferð 3. deildar karla. Leikurinn endaði 4-2 fyrir heimamenn og Matheus Bettio Gotler með tvennu.
Meira

Jafnvægið hefur raskast | Umræða um Króksmót

Talsverð umræða hefur skapast í kjölfar Króksmóts stúlkna sem fram fór á Sauðárkróki um liðna helgi. Þátttaka á mótinu var dræm svo ekki sé meira sagt en aðeins 27 lið frá sex félögum mættu til leiks að þessu sinni en liðin hafa jafnan verið í kringum 100 og mest 118. Fækkun varð í fyrra en þá tóku 68 lið þátt. Þessi knattspyrnumót eru jafnan mikilvæg tekjulind fyrir félögin og skipta oft höfuðmáli í starfseminni fyrir utan hvað þau eru skemmtileg og gefandi. Nú virðist sem stóru klúbbarnir sæki í sífellt stærri bita af kökunni. Feykir heyrði hljóðið í Guðbjörgu Óskarsdóttur mótsstjóra Króksmótsins sem og Eysteini Pétur Lárussyni framkvæmdastjóra KSÍ.
Meira

Aldrei dauð stund á Norðurlandi vestra

Nóg er um að vera á Norðurlandi vestra þessa dagana. Núna um helgina verða alls kyns viðburðir og hátíðir, Græni salurinn í Bifröst, HIP Fest á Hvammstanga, Rabarbarahátíðin á Blönduósi og Seinasta sveitaballið hjá Greifunum í Miðgarði.
Meira

Hollvinnir og kvenfélög afhentu HVE á Hvammstanga góða gjöf

Fimmtudaginn 18. júní síðastliðinn fékk heilsugæslustöðin á Hvammstanga formlega afhent EKG tæki frá Hollvinasamtökum Heilbrigðisstofnunar Hvammstanga, Kvenfélaginu Freyju, Kvenfélaginu Iðju, Kvenfélaginu Iðunni, Kvenfélagi Staðarhrepps og Kvennabandinu.
Meira

Bændafundur vegna riðurannsókna verður í Húnaveri 30. júní

Það kom fram í frétt um Fálkaorðuhafann Karónlínu Elísabetardóttur í Hvammshlíð í Feyki í gær að hún væri að undirbúa bændafund þar sem nýjustu niðurstöður í riðurannsóknum verða kynntar. Fundurinn verður í Húnaveri þriðjudaginn 30. júní og hefst kl. 18. Á fundinn mæta Christine Fast, verkefnastjóri alþjóðlega riðurannsóknarhópsins, og Stefanía Þorgeirsdóttir frá Keldum, en Vincent Béringue næmisérfræðingur og fleiri aðilar mæta til leiks í gegnum Zoom.
Meira

Óvænt heimsókn í Skagafjörðinn

Farþegaskipið Scenic Eclipse kom óvænt til Sauðárkróks í morgun en för ‏þess var upprunalega heitið til Grænlands. Hafís við Grænland hafði áhrif á siglingaáætlunina og ‏því kom skipið í Skagafjörð frá Ísafirði.
Meira

Gagnaver Borealis eykur raforkukaup á Blönduósi

Landsvirkjun og Borealis​ Data Center​ hafa samið um aukin raforkukaup vegna uppbyggingar gagnavers Borealis á Blönduósi. Í frétt á Húnahorninu, þar sem vísað er í tilkynningu á vef Landsvirkjunar, segir að um sé að ræða langtímasamning um kaup á 12 MW forgangsorku til viðbótar við núgildandi samning. Í tilkynningunni kemur fram að Borealis hafi verið viðskiptavinur Landsvirkjunar frá því að starfsemi þess hófst hér á landi árið 2018.
Meira

Stefnt að því að bæta aðstöðu ferðamanna við Hvítserk

Landshornaflakkari Sýnar, Kristján Már Unnarsson, var á ferðinni í Húnaþingi vestra á dögunum og þar staldraði hann við hjá Knúti Arnari Óskarssyni ferðaþjónustubónda á Ósum á Vatnsnesi, næsta bæ við Hvítserk sem er að öllum líkindum stærsta aðdráttarafl ferðamanna á Norðurlandi vestra. Knútur hyggst reisa þjónustuhús, leggja göngustíga og smíða tröppur til að bæta aðgengi og upplifun ferðamanna á staðnum.
Meira

Leikhópar frá Ítalíu, Spáni, Kanada, Úkraínu og Íslandi koma á HIP Fest

Hvammstangi International Puppetry Festival eða HIP Fest er alþjóðleg brúðulistarhátíð sem sameinar framúrskarandi sviðslistafólk, bæði erlent og íslenskt, til Hvammstanga. Á hátíðinni mætast hefðbundið brúðuleikhús og nýsköpun í sviðslistum í fjölbreyttum sýningum fyrir ólíka aldurshópa.
Meira

„Þetta er á bílunum!“ | Leiðari 24. tölublaðs Feykis

Heimsmeistarakeppnin í knattspyrnu tröllríður flestu þessar vikurnar. Ég hef náð að horfa á nokkra leiki þrátt fyrir nánast algjört áhugaleysi áður en bolta var sparkað. Það kom kannski einna helst til af gríðarlega neikvæðri umræðu um mótið áður en það hófst og mátti skilja sem svo að það væri bara enginn að fara að mæta á leikina sök-um dýrtíðar, græðgi og vandamála við að komast inn í Bandaríkin. Yfir allri umræðunni grúfði svo Trump gamli, eins og ein af sálsugunum í Harry Potter-bókunum.
Meira