Fréttir

Föstudagur á Húnavöku

Upp er runninn föstudagur á Húnavöku. Hátíðin hefur fram að þessu farið hið besta fram. Í dag er nóg í boði og ber þar kannski hæst Vöffluröltið heimsfræga. Þar má á milli kl: 15.30 og 17.30 rölta milli húsa á Blönduósi og gæða sér á ljúffengum Vilko vöfflum.
Meira

Frábær samvera á prjónakvöldi í Drangey Studio

Í fyrrakvöld héldu systurnar sem standa á bak við Rendur, RA handlitun og Drangey Studio, enn eitt prjónakvöldið í Drangey Studio á Aðalgötu 4 á Króknum. „Það var yndislegt að sjá hversu margir mættu og sérstaklega gaman að fólk skyldi leggja leið sína til okkar meðal annars frá Akureyri og Skagaströnd,“ sagði Helgarut Hjartardóttir þegar Feykir spurðist fyrir um hvernig til hefði tekist en Rendur og Drangey Studio hafa staðið saman að handavinnutengdum viðburðum síðastliðin þrjú ár og fyrir ári síðan bættist RA handlitun í hópinn.
Meira

Eldur í Húnaþingi sameinar íbúa á skemmtilegan hátt

Húnavöku í Húnabyggð er ekki fyrr lokið á sunnudaginn næstkomandi en grannarnir í vestri, íbúar í Húnaþingi vestra, grípa gleðiboltann á lofti því hin árlega hátíð, Eldur í Húnaþingi, hefst strax á mánudag og stendur í viku. Semsagt dagana 20.-26. júlí. Til að fræðast örlítið um Eld í Húnaþingi og hvað þar verður á döfinni hafði Feykir samband við viðburðastjórann Petrek Óla Gústafsson.
Meira

Heimildarmynd um endurheimt Brimnesskóga í Skagafirði

Pálmar Örn Guðmundsson hefur nýlega lokið við gerð heimildarmyndar um endurheimt hinna fornu Brimnesskóga í Skagafirði – náttúruskóga sem Ari fróði greinir frá í Landnámu. Myndinni fylgir enskur texti.Heimildarmyndin er í tveimur hlutum og er hún aðgengileg á YouTube. Í henni er greint frá sögu horfinna skóga í Skagafirði og þeirri vitneskju að Ísland hafi við landnám verið skógi vaxið milli fjalls og fjöru.
Meira

Götugrill og styrktarbingó á Húnavöku

Húnavaka hófst í gær með Gömludansaballi en það má kannski segja að fjörið hefjist fyrir alvöru seinni partinn í dag þegar grillað verður í boði Húnabyggðar og Ölgerðarinnar í tjaldi framan við Félagsheimilið á Blönduósi. Ekki er annað að sjá í kortunum en að veðrið muni standa með íbúum Húnabyggðar á Húnavöku næstu dagana.
Meira

Staðan á Stólastúlkum hefur batnað

Talsverð umræða skapaðist um síðustu helgi þegar lið Tindastóls þurfti að gefa leik sinn gegn liði Keflavíkur í Lengjudeild kvenna vegna manneklu. Næsti leikur Stólastúlkna er gegn liði Selfoss nú á laugardaginn og fer fram á Króknum. Fyrri leikur liðanna endaði með 3-1 sigri Selfoss. Feykir spurði Domi þjálfara hvort staðan á hópnum hefði skánað frá því um síðustu helgi.
Meira

Hvað er Húnavaka? Víðir Kristjánsson fer um víðan völl

Víðir býr í Stóradal í Svínadal. Hann er bóndi og samkvæmt facebook er hann á lausu ef einhver trúir því. Hann er mannvinur mikill og er eftir því tekið hvað hann á fallegt samband við t.d.Jón á Hofi. Víðir svara hér af óvenjulega mikilli hógværð.
Meira

Ólafur Þór varð fyrir valinu á Skagaströnd

Ólafur Þór Ólafsson hefur verið valinn úr hópi 16 umsækjenda til að taka við starfi sveitarstjóra á Skagaströnd. Í frétt á vef sveitarfélagsins segir að gert sé ráð fyrir að sveitarstjórn staðfesti ráðninguna á fundi sínum þann 22. júlí næstkomandi. Ólafur er stjórnmálafræðingur að mennt og með MPA gráðu í opinberri stjórnsýslu frá Háskóla Íslands.
Meira

Mark Watson dagurinn á Byggðasafni Skagfirðinga

Í tilefni af afmæli enska aðalsmannsins Mark Watson stendur Byggðasafn Skagfirðinga fyrir dagskrá í Glaumbæ laugardaginn 18. júlí frá kl. 15:30 til 17:30. Viðburðurinn er haldinn í samstarfi við Sögusetur íslenska fjárhundsins og hvetur Byggðasafnið íbúa og gesti til að sækja það heim í tilefni dagsins.
Meira

Hvað er Húnavaka? Þorgils Magnússon svarar

Þorgils er fæddur og uppalinn á Sveinsstöðum í Þingi en hann býr og starfar á Blönduósi. Hvernig upplifir hann Húnavöku?
Meira